Fréttir frá ráðuneytunum

Átakinu göngum í skólann hleypt af stað.

8.9.2010 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Göngum í skólann-átakinu hleypt af stað í fjórða sinn

Nemendur úr Fossvogsskóla í Reykjavík og Snælandsskóla í Kópavogi voru viðstaddir þegar átakinu ,,Göngum í skólann” var hleypt af stað í morgun. Ýmsir aðilar standa að átakinu sem nú er haldið í fjórða sinn og hefur þann tilgang að hvetja nemendur og foreldra til að ganga eða hjóla í skóla.

Lesa meira
 
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Kaj Leo Johannessen lögmaður Færeyja

8.9.2010 Forsætisráðuneyti Aukið samstarf Færeyja og Íslands á sviði jafnréttismála o.fl.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Kaj Leo Johannessen, lögmaður Færeyja, funduðu í dag í Færeyjum og undirrituðu við það tækifæri viljayfirlýsingu um aukið samstarf forsætisráðuneytanna.

Lesa meira
 
Kristrún Heimisdóttir, aðstoðamaður ráðherra

8.9.2010 Efnahags- og viðskiptaráðuneytið Kristrún Heimisdóttir hefur verið ráðin aðstoðarkona efnahags- og viðskiptaráðherra

Kristrún er lögfræðingur að mennt og hefur starfað sem slíkur hjá LEX lögmannsstofu, Samtökum iðnaðarins, félags- og tryggingamálaráðuneytinu og umboðsmanni
Alþingis.

Lesa meira
 

8.9.2010 Heilbrigðisráðuneyti Norrænar gæðamælingar í heilbrigðisþjónustunni

Komin er út á vegum Norrænu  ráðherranefndarinnar skýrsla um gæðamælingar í heilbrigðisþjónustunni. Í  henni er  greint frá vinnu  fjögurra  verkefnishópa. sem Norræna ráðherranefndin skipaði til þriggja ára til að skoða ýmsa þætti varðandi gæðaþróun og öryggi sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni á Norðurlöndunum.

Lesa meira
 
Anna Sigrún Baldursdóttir

8.9.2010 Heilbrigðisráðuneyti Ráðin aðstoðarmaður heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra

Anna Sigrún Baldursdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðbjarts Hannessonar heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra.

Lesa meira
 

8.9.2010 Félags- og tryggingamálaráðuneytið Aukið fé til meðferðar fyrir karla sem beita ofbeldi

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur veitt 800.000 króna styrk til meðferðarúrræðisins Karlar til ábyrgðar svo unnt sé að halda rekstri þess óskertum til ársloka.
Lesa meira
 
Fundur með fulltrúum lífeyrissjóða um samgönguframkvæmdir.

7.9.2010 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Fulltrúum lífeyrissjóða kynntar samgönguframkvæmdir

Fulltrúar samgönguyfirvalda kynntu í dag fyrir fulltrúum lífeyrissjóða nokkur stórverkefni í vegagerð sem rætt hefur verið um að lífeyrissjóðirnir fjármagni. Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lagði á fundinum áherslu að halda áfram þeim viðræðum ríkisvalds og lífeyrissjóða sem staðið hafa síðustu vikur og mánuði.

Lesa meira
 
Endurskoðunarnefndin 2010

7.9.2010 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Nr. 53/2010 - Skýrsla um endurskoðun á stjórn fiskveiða

Með vísan til samstarfsyfirlýsingar núverandi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða, skipaði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, starfshóp til þess að vinna að endurskoðun þessari og setja fram valkosti um leiðir til úrbóta.

Lesa meira
 

7.9.2010 Efnahags- og viðskiptaráðuneytið Embætti forstjóra Einkaleyfastofu

Vegna tímabundins leyfis forstjóra Einkaleyfastofu var embættið auglýst laust til umsóknar með setningartíma frá 1. október 2010 til tveggja ára. Umsóknarfrestur rann út 30. ágúst sl. og bárust sjö umsóknir um starfið. 
Lesa meira
 

6.9.2010 Forsætisráðuneyti Forsætisráðherra í heimsókn til Færeyja

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Færeyja.
Lesa meira
 
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra er samstarfsráðherra Norðurlandaráðs

6.9.2010 Utanríkisráðuneyti Ræða stjórnsýsluhindranir og framtíð erfðalindasamstarfs á Norðurlöndum

Katrín Jakobsdóttir samstarfsráðherra situr fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyjum á morgun, þriðjudaginn 7. september.

Lesa meira
 

6.9.2010 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og Vestmannaeyjabæ

Nokkur umræða varð í fjölmiðlun í síðustu viku um fjárhagsstöðu sveitarfélaga eftir birtingu upplýsinga úr ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2009 þar á meðal upplýsinga um heildarskuldir og skuldbindingar sveitarsjóða sem hlutfall af heildartekjum.

Lesa meira
 
Hæstiréttur Íslands

6.9.2010 Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti Umsögn dómnefndar um umsækjendur um embætti hæstaréttardómara

Dómnefnd um umsækjendur um embætti hæstaréttardómara skilaði dómsmálaráðuneytinu umsögn sinni um hæfni umsækjenda 1. september sl.

Lesa meira
 

3.9.2010 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Vegna hugsanlegrar skráningar flugvéla á vegum ECA á Íslandi

Vegna umfjöllunar að undanförnu í fjölmiðlum og á heimasíðu ECA Program Limited um umsókn fyrirtækisins óskar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið að taka eftirfarandi fram:

Lesa meira
 

3.9.2010 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Nr. 52/2010 - Skýrsla Ríkisendurskoðunar til Alþingis vegna framkvæmdar búvörusamninga, frá september 2010

Í tilefni af þessari skýrslu vill ráðuneytið þakka Ríkisendurskoðun fyrir yfirgripsmikla athugun og afstemmingar á fjárhæðum búvörusamninga og framkvæmd þeirra.

Lesa meira
 

3.9.2010 Heilbrigðisráðuneyti Reglugerð um brýna læknismeðferð erlendis

Heilbrigðisráðherra hefur undirritað reglugerð um brýna læknismeðferð erlendis þegar ekki er unnt að veita nauðsynlega aðstoð hér á landi, sem og um ferðastyrki vegna meðferðarinnar. Reglugerðin kemur í stað þriggja eldri reglugerða.

Lesa meira
 

3.9.2010 Heilbrigðisráðuneyti Ný reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar

Heilbrigðisráðherra hefur undirritað reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar. Með henni eru felldar saman fjórar gildandi reglugerðir á þessu sviði.

Lesa meira
 
Guðbjartur Hannesson og Árni Páll Árnason

2.9.2010 Félags- og tryggingamálaráðuneytið Ráðherraskipti og sameining ráðuneyta

Guðbjartur Hannesson tók í dag við lyklum að félags- og tryggingamálaráðuneytinu úr hendi Árna Páls Árnasonar. Guðbjartur er einnig ráðherra heilbrigðismála og mun stýra sameiningu ráðuneytanna tveggja sem tekur gildi um næstu áramót.

Lesa meira
 
ÖgmundurJónasson tekur við embætti samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

2.9.2010 Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti Ögmundur Jónasson tekur við embætti ráðherra

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, lét af embætti sínu í dag og við því tók Ögmundur Jónasson sem jafnframt gegnir embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra. Þessi breyting á ríkisstjórn og fleiri fóru fram á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í hádeginu.

Lesa meira
 
Ögmundur Jónasson tekur við lyklum að dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu.

2.9.2010 Dómsmála- og mannréttindaráðuneyti Ögmundur Jónasson nýr dómsmála- og mannréttindaráðherra

Ögmundur Jónasson tók við lyklavöldum að dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu í dag af Rögnu Árnadóttur.

Lesa meira
 

2.9.2010 Forsætisráðuneyti Munnleg skýrsla forsætisráðherra um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar

Jóhanna Sigurðardóttir flutti Alþingi munnlega skýrslu í dag um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar. Í máli hennar kom meðal annars fram að helstu hagvísar benda til þess að algjör viðsnúningur hafi orðið í íslensku efnahagslífi.
Lesa meira
 
Guðbjartur Hannesson tekur við lyklavöldum heilbrigðisráðuneytisins

2.9.2010 Heilbrigðisráðuneyti Guðbjartur Hannesson nýr heilbrigðisráðherra

Guðbjartur Hannesson er nýr heilbrigðisráðherra. Hann tók við embætti á ríkisráðsfundi í dag.

Lesa meira
 
Í Hallormsstaðaskógi

2.9.2010 Umhverfisráðuneyti Drög að skógræktarstefnu til umsagnar

Nefnd leidd af skógræktarstjóra hefur unnið drög að skógræktarstefnu fyrir Ísland og almenningi býðst nú að senda inn athugasemdir um þau. Fram til þessa hefur ekki verið til samræmd skógræktarstefna hér á landi en um skógrækt hefur verið fjallað í ýmsum lögum, samþykktum og áætlunum.
Lesa meira
 

2.9.2010 Utanríkisráðuneyti Verkefnisstjórn tekur yfir stjórn Varnarmálastofnunar

Utanríkisráðherra hefur skipað fimm manna verkefnisstjórn til að fara með stjórn Varnarmálastofnunar og bera ábyrgð á daglegum rekstri hennar frá 1. september til áramóta er stofnunin verður lögð niður
Lesa meira
 

Tungumál


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica