Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2015 Forsætisráðuneytið

Endurskoðuð áætlun um framlagningu þingmála vetrar- og vorþing 2015

Í samræmi við 2. mgr. 47. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991 afhendir ríkisstjórn forseta Alþingis, við upphaf vetrarþings að loknu jólahléi, endurskoðaða áætlun um framlagningu stjórnarfrumvarpa á vetrar- og vorþingi ásamt áætluðum útbýtingardegi.

Á skránni eru m.a. þingmál sem lögð verða fram til kynningar. Fyrir neðan heiti frumvarps er áætlaður útbýtingardagur eða staða máls. Sjá nánari lýsingar á frumvörpum í þingmálaskrá sem lögð var fram síðastliðið haust.

Forsætisráðherra

  1. Frumvarp til laga um sérstök verndarsvæði í byggð 
    Ekki síðar en 16. febrúar 
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands
    Bíður 1. umræðu 
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 58/1998, um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta
    Ekki síðar en 16. febrúar 
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 34/1944, um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldaramerkið
    Ekki síðar en 26. mars 
  5. Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd þingsályktana frá árinu 2013
    Til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 
  6. Skýrsla forsætisráðherra um málefni þjóðlendna
    Ekki síðar en 26. mars
  7. Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga
    Verður ekki lögð fram nú

Félags- og húsnæðismálaráðherra

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/1999, um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum (innleiðing tilskipunar)
    Samþykkt sem lög
  2. Frumvarp til laga um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins
    Samþykkt sem lög
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa (gjaldþrot vinnuveitanda)
    Samþykkt sem lög
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 100/2010, um umboðsmann skuldara (upplýsingaskylda og dagsektir)
    Bíður 2. umræðu
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar (markmið, stjórnsýsla og almenn ákvæði)
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd
  6. Frumvarp til laga um úrskurðarnefnd velferðarmála
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd
  7. Frumvarp til laga um sérhæfða þjónustumiðstöð á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar)
    Bíður 1. umræðu
  9. Frumvarp til laga um jafna meðferð karla og kvenna er varðar aðgang og afhendingu á vörum og þjónustu
    Ekki síðar en 26. mars
  10. Frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði
    Ekki síðar en 26. mars
  11. Frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna
    Ekki síðar en 26. mars
  12. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðs fólks (aukin vinnuvernd og notendastýrð persónuleg aðstoð)
    Bíður 1. umræðu
  13. Frumvarp til laga um húsnæðisbætur
    Ekki síðar en 27. febrúar
  14. Frumvarp til laga um húsnæðismál 
    Ekki síðar en 26. mars
  15. Frumvarp til laga um húsnæðissamvinnufélög
    Ekki síðar en 26. mars
  16. Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994
    Ekki síðar en 26. mars
  17. Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
    Ekki síðar en 27. febrúar
  18. Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum
    Ekki síðar en 26. mars
  19. Tillaga til þingsályktunar um fjölskyldustefnu
    Ekki síðar en 26. mars
    Viðbót
  20. Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2015-2016
    Ekki síðar en 26. mars

Fjármála- og efnahagsráðherra

  1. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2015
    Samþykkt sem lög
  2. Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2014
    Samþykkt sem lög
  3. Frumvarp til lokafjárlaga fyrir árið 2013
    Ekki síðar en 28. janúar
  4. Frumvarp til laga um ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015 (ýmsar breytingar)
    Samþykkt sem lög 
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, brottfall laga nr. 97/1987, um vörugjald, og breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (kerfisbreyting á virðisaukaskatti, brottfall laga og hækkun barnabóta)
    Samþykkt sem lög 
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, og lögum nr. 165/2011, um fjársýsluskatt (samræming og einföldun)
    Var sameinað máli nr. 9 og er til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd 
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (skattaívilnanir vegna hlutabréfakaupa)
    Ekki síðar en 26. mars
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 152/2009, um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (gildistími o.fl.)
    Samþykkt sem lög
  9. Frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, og lögum nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (samræming og einföldun)
    Var sameinað máli nr. 6 og er til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd
  10. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 30/1992, um yfirskattanefnd, lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, tollalögum, nr. 88/2005, og lögum nr. 162/2002, um úrvinnslugjald (yfirskattanefnd tekur við verkefnum ríkistollanefndar, afmörkun úrskurðarvalds, málsmeðferð o.fl.)
    Samþykkt sem lög
  11. Frumvarp til laga um opinber fjármál
    Til umfjöllunar í fjárlaganefnd
  12. Frumvarp til laga um breytingu lögum nr. 155/2012, um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum
    Bíður framlagningar
  13. Frumvarp til laga um skipan opinberra framkvæmda og fasteignir ríkisins
    Verður ekki lagt fram nú
  14. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2006, um kjararáð, og fleiri lögum
    Bíður framlagningar 
  15. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands (eiginfjármarkmið og ráðstöfun hagnaðar)
    Samþykkt sem lög
  16. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands (heildarendurskoðun)
    Ekki síðar en 26. mars 
  17. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (viðurlög)
    Ekki síðar en 27. febrúar
  18. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (fjárfestingarheimildir)
    Ekki síðar en 26. mars
  19. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (leyfilegur munur á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga)
    Samþykkt sem lög
  20. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (ársreikningar)
    Ekki síðar en 26. mars
  21. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, og lögum nr. 2/1997, um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga
    Ekki síðar en 26. mars
  22. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu (gengistrygging)
    Bíður framlagningar
  23. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, o.fl. (bann við lengri verðtryggðum lánum)
    Ekki síðar en 26. mars
  24. Frumvarp til laga um ríkisaðstoð
    Ekki síðar en 16. mars
  25. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (CRD IV/CRR)
    Ekki síðar en 28. janúar
  26. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (útibú)
    Ekki síðar en 26. mars
  27. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á fjármálamarkaði vegna endurskoðunar á viðurlagaákvæðum á sviði fjármálamarkaðar o.fl. (bandormur)
    Ekki síðar en 27. febrúar
  28. Frumvarp til laga um fasteignaveðlán
    Ekki síðar en 20. mars
  29. Frumvarp til laga um afleiðuviðskipti og skortsölu
    Verður ekki lagt fram nú
  30. Frumvarp til laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða
    Ekki síðar en 26. mars
  31. Frumvarp til laga um slita- og skilameðferð fjármálafyrirtækja
    Ekki síðar en 16. mars
  32. Frumvarp til laga um innstæðutryggingar
    Ekki síðar en 26. mars
  33. Frumvarp til laga um vátryggingastarfsemi (heildarlög)
    Ekki síðar en 16. mars
  34. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 30/2004, um vátryggingarsamninga (hreyfanleiki viðskiptavina)
    Bíður 2. umræðu
  35. Frumvarp til laga um úrskurðarnefndir
    Verður ekki lagt fram nú
  36. Frumvarp til laga um náttúruhamfaratryggingar og brunatryggingar
    Ekki síðar en 26. mars
  37. Frumvarp til laga um lánshæfismatsfyrirtæki (CRA I)
    Verður ekki lagt fram nú
    Viðbót
  38. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og lögum nr. 94/1996, um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur (ESA mál o.fl.)
    Ekki síðar en 16. mars
  39. Tillaga til þingsályktunar um meginskiptingu útgjalda fjárlaga næsta fjárlagaárs (ramma), svo og greinargerð um breytingar á tekjuöflun ríkisins (skylt skv. 25. gr. þingskapalaga, nr. 55/1991)
    Ekki síðar en 16. mars

Heilbrigðisráðherra

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu (reglugerðarheimild, EES-reglur)
    Samþykkt sem lög
  2. Frumvarp til laga um slysatryggingar almannatrygginga
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir, og lögum nr. 86/2011, um verslun með áfengi og tóbak
    Ekki síðar en 26. mars
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar (flóttamenn)
    Bíður 2. umræðu
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994 (auglýsingar)
    Bíður 1. umræðu
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum, nr. 93/1994 (lyfjagát)
    Ekki síðar en 27. febrúar
  7. Frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni
    Ekki síðar en 27. febrúar
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar (heilbrigðisþjónusta yfir landamæri)
    Ekki síðar en 27. febrúar
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar (eitt niðurgreiðslu- og afsláttarkerfi)
    Ekki síðar en 26. mars
  10. Tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2020
    Ekki síðar en 27. febrúar
  11. Tillaga til þingsályktunar um geðheilbrigðisstefnu
    Ekki síðar en 26. mars
  12. Skýrsla heilbrigðisráðherra um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu
    Ekki síðar en 30. apríl
  13. Skýrsla heilbrigðisráðherra um leiðir til að fjölga líffæragjöfum frá látnum einstaklingum
    Ekki síðar en 30. apríl

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku (innleiðing tilskipunar og viðurlagaákvæði)
    Samþykkt sem lög
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 98/2004, um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (jöfnunargjald)
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2003, um Orkustofnun, og lögum um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, nr. 13/2001 (niðurlagning orkuráðs)
    Samþykkt sem lög
  4. Frumvarp til laga um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o. fl. (innleiðing tilskipunar og viðurlagaákvæði)
    Bíður 2. umræðu
  6. Frumvarp til laga um stofnun hlutafélags um þátttöku íslenska ríkisins í kolvetnisstarfsemi
    Bíður 2. umræðu
  7. Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (kerfisáætlun og innleiðing)
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd
  8. Frumvarp til laga um heimild til að staðfesta fjárfestingarsamning við United Silicon ehf. vegna kísilvers við Helguvík
    Ekki síðar en 28. janúar
  9. Frumvarp til laga um heimild til að staðfesta fjárfestingarsamning við Thorsil ehf. um kísilmálmverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ
    Bíður 1. umræðu
  10. Frumvarp til laga um greiðsludrátt í verslunarviðskiptum
    Bíður 2. umræðu
  11. Frumvarp til laga um leigu skráningarskyldra ökutækja
    Bíður 1. umræðu
  12. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög, og lögum nr. 3/2006, um ársreikninga (samþykktir o.fl.)
    Samþykkt sem lög
  13. Frumvarp til laga um um sölu fasteigna og skipa
    Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd
  14. Frumvarp til laga um náttúrupassa
    Bíður 1. umræðu
  15. Frumvarp til laga um almannaheillasamtök
    Ekki síðar en 26. mars
  16. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 3/2006, um ársreikninga
    Ekki síðar en 26. mars
  17. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
    Ekki síðar en 26. mars
  18. Frumvarp til laga um sölu ökutækja
    Ekki síðar en 26. mars
  19. Tillaga til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd
    Viðbót
  20. Frumvarp til laga um heimild til að staðfesta fjárfestingarsamning við Silicor ehf. vegna kísilvers á Grundartanga
    Ekki síðar en 26. mars
  21. Frumvarp til laga um heimild til handa ráðherra, f.h. ríkissjóðs, til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í Helguvík
    Ekki síðar en 26. mars
  22. Tillaga til þingsályktunar um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar
    Ekki síðar en 27. febrúar
  23. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (hæfi dyravarða)
    Samþykkt sem lög

Innanríkisráðherra

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála (embætti héraðssaksóknara)
    Samþykkt sem lög
  2. Frumvarp til laga um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi vegna refsiverðra verknaða á grundvelli handtökuskipunar (norræn og evrópsk handtökuskipun)
    Bíður 1. umræðu
  3. Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna flutnings netöryggissveitar til almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra
    Verður ekki lagt fram nú
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 16/2000, um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi (ný kynslóð kerfisins)
    Bíður 1. umræðu
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála, lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála, lögum nr. 90/1989, um aðför, lögum nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., og lögum nr. 15/1998, um dómstóla (einföldun réttarfars)
    Ekki síðar en 28. janúar
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála (skýrslutökur af börnum í Barnahúsi)
    Verður ekki lagt fram nú
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 15/1998, um dómstóla, lögum nr. 91/1991 um meðferð einkamála, og lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála (millidómstig)
    Ekki síðar en 26. mars
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála, og lögreglulögum, nr. 90/1996 (skipan ákæruvalds, rannsókn efnahagsbrotamála o.fl.)
    Bíður 1. umræðu
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996 (menntun lögreglumanna)
    Verður ekki lagt fram nú
  10. Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (ríkisstyrkir o.fl.)
    Samþykkt sem lög
  11. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 141/2001, um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda
    Samþykkt sem lög
  12. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 46/2005, um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir
    Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd
  13. Frumvarp til laga um fullnustu refsinga
    Bíður framlagningar
  14. Frumvarp til laga um breytingu á vegalögum, nr. 80/2007 (gjaldtaka af umferð o.fl.)
    Bíður 2. umræðu
  15. Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987
    Bíður 2. umræðu
  16. Frumvarp til laga um Rauða krossinn á Íslandi og merki Rauða krossins, Rauða hálfmánans og Rauða kristalsins
    Samþykkt sem lög
  17. Frumvarp til laga um fólksflutninga á landi í atvinnuskyni
    Ekki síðar en 28. janúar
  18. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 73/2001, um fólksflutninga og farmflutninga á landi
    Ekki síðar en 28. janúar
  19. Frumvarp til laga um breytingu á vopnalögum, nr. 16/1998
    Ekki síðar en 26. mars
  20. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/1991, um nauðungarsölu (sérstakur fyrningarfrestur eftirstæðra krafna við nauðungarsölu og réttarstaða leigjenda)
    Ekki síðar en 26. mars
  21. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/1991, um nauðungarsölu (frestun nauðungarsölu)
    Samþykkt sem lög
  22. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 78/1997, um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar (aukin verkefni kirkjuþings)
    Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd
  23. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 38/2005, um happdrætti, o.fl. (nethappdrætti og forvarnir)
    Verður ekki lagt fram nú
  24. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga (fjölgun í ráðgjafarnefnd, tímabundin ákvæði um fasteignaskatt af atvinnuhúsnæði og sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði)
    Samþykkt sem lög
  25. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/1931, um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra
    Verður ekki lagt fram nú
  26. Frumvarp til laga um póstþjónustu
    Ekki síðar en 26. mars
  27. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til undirbúnings fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
    Bíður 1. umræðu
  28. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 62/1994, um mannréttindasáttmála Evrópu (fullgilding viðauka 15)
    Ekki síðar en 27. febrúar 
  29. Frumvarp til laga um útlendinga (heildarendurskoðun)
    Ekki síðar en 26. mars
  30. Frumvarp til laga um breytingu á lögræðislögum, nr. 71/1997 (fullgilding sáttmála Sameinuðu þjóðanna, breyting á ákvæðum varðandi nauðungarvistun, breyting á ákvæðum varðandi lögræði og sjálfræði)
    Ekki síðar en 26. mars
  31. Frumvarp til laga um eignarrétt og afnotarétt fasteigna
    Verður ekki lagt fram nú
  32. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar samgöngustofnana (gjaldskrárheimildir, EES-reglur)
    Ekki síðar en 26. mars
  33. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 32/2004, um vatnsveitur sveitarfélaga (grundvöllur vatnsgjalds)
    Ekki síðar en 27. febrúar
  34. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála (gjafsókn)
    Ekki síðar en 26. mars
  35. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/2004, um siglingavernd, og lögum nr. 60/1998, um loftferðir
    Verður ekki lagt fram nú
  36. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 81/2003, um fjarskipti
    Verður ekki lagt fram nú
  37. Frumvarp til laga um breytingu á siglingalögum, nr. 34/1985
    Ekki síðar en 26. mars
  38. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 30/2007, um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa
    Verður ekki lagt fram nú
  39. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 54/1962, um þjóðskrá og almannaskráningu
    Ekki síðar en 26. mars
  40. Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2015-2026
    Ekki síðar en 26. mars
  41. Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2015-2018
    Ekki síðar en 26. mars
  42. Tillaga til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun 2015-2018
    Ekki síðar en 26. mars
  43. Tillaga til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun 2015-2026
    Ekki síðar en 26. mars
    Viðbót 
  44. Tillaga til þingsályktunar um réttaröryggisáætlun
    Ekki síðar en 26. mars
  45. Tillaga til þingsályktunar um löggæsluáætlun 2015-2026
    Ekki síðar en 26. mars
  46. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 15/1998 (fjöldi dómara)
    Samþykkt sem lög
  47. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannavarnir, nr. 82/2008, raforkulögum, nr. 65/2003, lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, og lögum um Viðlagatryggingu Íslands, nr. 55/1992 (skyldur ráðuneyta, stofnana og fyrirtækja, mikilvægir samfélagsinnviðir, valdheimildir stjórnvalda, bótaskylda)
    Bíður 1. umræðu
  48. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga (tímabundin breyting er varðar ráðstöfun tekna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga af bankaskatti)
    Ekki síðar en 28. janúar
  49. Frumvarp til laga um rafrænar þinglýsingar
    Ekki síðar en 26. mars

Mennta- og menningamálaráðherra

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008 (rafræn námsgögn o.fl.)
    Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd
  2. Frumvarp til laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (ESA: viðeigandi ráðstafanir)
    Ekki síðar en 16. febrúar
  3. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (höfundaréttargjald á stafræna geymslumiðla)
    Ekki síðar en 26. mars
  4. Frumvarp til laga um örnefni
    Bíður 1. umræðu
  5. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (tilskipun 2011/77/ESB um breytingu á tilskipun 2006/116/EB: lenging verndartíma hljóðrita)
    Ekki síðar en 16. febrúar
  6. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (tilskipun 2012/28/ESB: afnot munaðarlausra verka)
    Ekki síðar en 26. mars
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (breytt valdmörk ráðuneyta, útvistun grunnskólahalds)
    Bíður 1. umræðu
  8. Frumvarp til laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 87/2008 (endurskoðun)
    Ekki síðar en 26. mars
  9. Endurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna, nr. 21/1992 (ný heildarlög)
    Ekki síðar en 26. mars
  10. Frumvarp til sviðslistalaga
    Ekki síðar en 26. mars
  11. Frumvarp til laga um tónlistarskóla (fjárstuðningur ríkisins)
    Ekki síðar en 26. mars
  12. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972 (endurskoðun höfundalaga)
    Ekki síðar en 26. mars
  13. Frumvarp til laga um Menntamálastofnun
    Bíður 1. umræðu
  14. Skýrsla mennta- og menningarmálaráðherra um framkvæmd skólastarfs í framhaldsskólum, skólaárin 2008 – 2009, 2009 – 2010 og 2010 - 2012. 
    Ekki síðar en 15. apríl

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

  1. Frumvarp til laga um kvótaþing
    Ekki síðar en 28. janúar
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 74/2012, um veiðigjöld (samningaleið)
    Ekki síðar en 28. janúar
  3. Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (hlutdeildarsetning makríls)
    Ekki seinna en 2. mars
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði (meðferð og ráðstöfun eigna veiðifélaga)
    Ekki seinna en 26. janúar
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/1992, um Fiskistofu, og ýmsum öðrum lögum (gjaldskrárheimild)
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar (vigtun og eftirlit)
    Ekki seinna en 5. mars
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (vannýttar tegundir)
    Ekki seinna en 16. mars
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands (hafnríkisaðgerðir)
    Bíður 1. umræðu
  10. Frumvarp til laga um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu
    Samþykkt sem lög
  11. Frumvarp til laga um breytingu á jarðalögum, nr. 81/2004 (lausn úr landbúnaðarnotum og sala ríkisjarða)
    Bíður 2. umræðu
  12. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 80/2005, um Matvælastofnun
    Ekki síðar en 5. mars
  13. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum (flutningur stjórnsýsluverkefna)
    Ekki síðar en 5. mars 
  14. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra
    Ekki síðar en 16. febrúar
  15. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli
    Ekki síðar en 5. mars 
    Viðbót
  16. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim
    Ekki síðar en 5. mars 
  17. Frumvarp til laga um byggðaáætlun og sóknaráætlanir
    Ekki síðar en 26. mars
  18. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 106/1999, um Byggðastofnun
    Ekki síðar en 26. mars
  19. Frumvarp til laga um Haf- og vatnarannsóknir
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd

Umhverfis- og auðlindaráðherra

  1. Frumvarp til laga um byggingarvörur (heildarlög)
    Samþykkt sem lög
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 106/2000, um mat á umhverfisáhrifum (viðaukar, tilkynningarskyldar framkvæmdir, flutningur stjórnsýslu)
    Samþykkt sem lög
  3. Frumvarp til laga um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum (heildarlög)
    Bíður framlagningar
  4. Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (breyting bótaákvæða o.fl.)
    Ekki síðar en 2. mars
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (fjölgun nefndarmanna, afgreiðsla kærumála eldri úrskurðarnefndar)
    Samþykkt sem lög
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 103/2006, um landmælingar og grunnkortagerð (afmörkun á nákvæmni landupplýsinga)
    Ekki síðar en 2. febrúar
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur (fullgilding Kartagena-bókunar, verkaskipting Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar)
    Ekki síðar en 26. mars
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 70/2012, um loftslagsmál (EES-reglur, geymsla koldíoxíðs, vistvæn ökutæki)
    Bíður 1. umræðu
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/2011, um stjórn vatnamála (fyrirkomulag gjaldtöku)
    Bíður framlagningar
  10. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð (breyting á stjórnfyrirkomulagi og aðrar breytingar)
    Ekki síðar en 2. mars
  11. Frumvarp til laga um timbur og timburvörur (heildarlög)
    Verður ekki lagt fram nú
  12. Frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (heildarlög)
    Bíður 1. umræðu
  13. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 49/1997, um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (hættumat eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða)
    Samþykkt sem lög
  14. Frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög)
    Ekki síðar en 26. mars
  15. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir (hlutverk eftirlitsaðila, stjórnvaldssektir, umhverfisupplýsingar o.fl.)
    Ekki síðar en 26. mars
  16. Frumvarp til laga um breytingu á efnalögum, nr. 61/2013 (færsla eftirlits með notkun hættulegra efna í raf- og rafeindabúnaði o.fl.)
    Ekki síðar en 26. mars
  17. Frumvarp til laga um skipulag hafs og stranda (heildarlög)
    Verður ekki lagt fram nú
  18. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs (innleiðingar Evrópugerða, stjórnvaldssektir o.fl.)
    Ekki síðar en 26. mars
  19. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1999, um náttúruvernd (almannaréttur og fleiri ákvæði)
    Ekki síðar en 26. mars
  20. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum, m.a. lögum nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda (upptaka refsiákvæða vegna tiltekinna brota sem varða umhverfið)
    Verður ekki lagt fram nú
  21. Tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 13/141 (Hvammsvirkjun)
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd
  22. Tillaga til þingsályktunar um náttúruverndaráætlun
    Ekki síðar en 26. mars
  23. Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015 – 2026
    Ekki síðar en 26. mars
    Viðbót
  24. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 9/2009, um uppbyggingu og rekstur fráveitna
    Ekki síðar en 26. mars

Utanríkisráðherra

  1. Frumvarp til laga um bann við vissum vopnum
    Ekki síðar en 26. mars
  2. Frumvarp til laga um alþjóðleg öryggismál
    Ekki síðar en 26. mars
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 121/2008, um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands
    Ekki síðar en 27. febrúar
  4. Tillaga til þingsályktunar um áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2015-2018
    Ekki síðar en 26. mars
  5. Tillaga til þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland
    Ekki síðar en 27. febrúar
  6. Tillaga til þingsályktunar um að draga til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu, ef til kemur
    Ekki síðar en 26. mars
  7. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2015
    Ekki síðar en 26. mars
  8. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2015
    Ekki síðar en 26. mars
  9. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2013 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir, vottun) við EES-samninginn
    Bíður fyrri umræðu
  10. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2013 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn
    Til umfjöllunar í utanríkismálanefnd
  11. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2014 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
    Ekki síðar en 27. febrúar
  12. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samnings milli Evrópusambandsins og aðildarríkja þess og Íslands varðandi þátttöku Íslands í sameiginlegum efndum skuldbindinga Evrópusambandsins, aðildarríkja þess og Íslands á öðru skuldbindingartímabili Kýótóbókunarinnar við rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar
    Ekki síðar en 26. mars
  13. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu 15. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu
    Ekki síðar en 26. mars
  14. Skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkismál
    Ekki síðar en 26. mars
    Viðbót 
  15. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið (samningur um nýjan uppbyggingarsjóð)
    Ekki síðar en 26. mars
  16. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2014 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn
    Ekki síðar en 27. febrúar
  17. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 269/2014 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir, vottun) við EES-samninginn
    Ekki síðar en 26. mars
  18. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn (evrópskar eftirlitsstofnanir á fjármálamarkaði)
    Ekki síðar en 26. mars
  19. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samnings hafnríkja um aðgerðir til að fyrirbyggja, hindra og uppræta ólöglegar, ótilkynntar og eftirlitslausar veiðar
    Bíður fyrri umræðu
  20. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu samnings milli Grænlands og Íslands um stjórnun rækjuveiða á Dohrnbanka
    Ekki síðar en 27. febrúar
  21. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu breytinga á Rómarsamþykktinni um Alþjóðlega sakamáladómstólinn viðvíkjandi glæpum gegn friði
    Ekki síðar en 26. mars

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum