Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2016 Forsætisráðuneytið

Endurskoðuð áætlun um framlagningu þingmála á vetrar- og vorþingi 2016

Í samræmi við 2. mgr. 47. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991 afhendir ríkisstjórn forseta Alþingis, við upphaf vetrarþings að loknu jólahléi, endurskoðaða áætlun um framlagningu stjórnarfrumvarpa á vetrar- og vorþingi ásamt áætluðum útbýtingardegi.

Á skránni eru m.a. þingmál sem lögð verða fram til kynningar. Fyrir neðan heiti frumvarps er áætlaður útbýtingardagur eða staða máls. Sjá nánari lýsingar á frumvörpum í þingmálaskrá sem lögð var fram síðastliðið haust.

Forsætisráðherra

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið nr. 34/1944 (notkun fánans við markaðssetningu á vöru og þjónustu) 
    Bíður 2. umræðu, 156. mál. 
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2004, um þjóðgarðinn á Þingvöllum (refsiheimild vegna gjaldtöku)
    Ekki síðar en 31. mars.
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 57/2011, um skil menningarverðmæta til annarra landa (innleiðing tilskipunar) 
    Ekki síðar en 31. mars. 
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 80/2012, um menningarminjar (friðlýsing og aldursfriðun, stjórnsýsla)  
    Ekki síðar en 31. mars. 
  5. Frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (einföldun og samræming þagnarskylduákvæða)  
    Ekki síðar en 31. mars. 
  6. Frumvarp til laga um breytingu á upplýsingalögum, nr. 140/2012 (innleiðing tilskipunar um endurnot upplýsinga) 
    Ekki síðar en 31. mars. 
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vísitölu byggingarkostnaðar, nr. 42/1987 (bætt aðferðafræði og mælitækni í útreikningi Hagstofu Íslands) 
    Ekki síðar en 31. mars. 
  8. Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis 2014 
    Útbýtt 18. desember 2015. 
  9. Skýrsla forsætisráðherra um málefni þjóðlendna 
    Ekki síðar en 31. mars. 
  10. Skýrsla forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga 
    Ekki síðar en 31. mars. 

    Viðbót 
  11. Frumvarp til laga um leyfisveitingar (fækkun leyfa, tilkynningar um starfsemi o.fl.)
    Frumvarpinu er ætlað að fækka þeim tilvikum þar sem þörf er á leyfi stjórnvalda til að hefja atvinnustarfsemi, annaðhvort með þeim hætti að ekki þurfi leyfi eða að í stað leyfis komi tilkynning til stjórnvalda um að fyrirtæki hafi hafið starfsemi. Þá er markmiðið einnig að huga að skilyrðum í leyfum, gagnaöflun vegna leyfisumsókna og kostnaði við umsóknir. Er frumvarpið í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar við gerð síðustu kjarasamninga um ráðstafanir til að greiða fyrir gerð kjarasamninga.
    Ekki síðar en 31. mars. 

Félags- og húsnæðismálaráðherra

  1. Frumvarp til laga um húsnæðisbætur
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 407. mál.
  2. Frumvarp til laga um almennar íbúðir
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 435. mál.
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 66/2003, um húsnæðissamvinnufélög (réttarstaða búseturéttarhafa, rekstur húsnæðissamvinnufélaga)
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 370. mál.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, með síðari breytingum (réttarstaða leigjanda og leigusala)
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 399. mál.
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 40/1991,  um félagsþjónustu sveitarfélaga (skilyrði fjárhagsaðstoðar)
    Ekki síðar en  27.janúar.
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál (EES-reglur o.fl.) 
    Ekki síðar en 31. mars.
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál (Íbúðastofnun)
    Sameinað máli nr. 8. Ekki síðar en 31. mars. 
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 44/1998, um húsnæðismál (húsnæðislán)
    Sameinað máli nr. 7.  Ekki síðar en 31. mars.
  9. Frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði
    Ekki síðar en 31. mars.
  10. Frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna
    Ekki síðar en 31. mars.
  11. Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda
    Ekki síðar en 31. mars.
  12. Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  13. Tillaga til þingsályktunar um fjölskyldustefnu
    Ekki síðar en 29. febrúar.

    Viðbót
  14. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007 (einföldun kerfisins, starfsgetumat, lífeyrisaldur, sveigjanleg starfslok o.fl.)
    Ekki síðar en 31. mars.

Fjármála- og efnahagsráðherra 

  1. Frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2016
    Samþykkt sem lög.
  2. Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2015
    Samþykkt sem lög.
  3. Frumvarp til lokafjárlaga fyrir árið 2014
    Til umfjöllunar í fjárlaganefnd.
  4. Frumvarp til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016 
    Samþykkt sem lög.
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt (skattívilnanir vegna hlutabréfakaupa)
    Ekki síðar en 31. mars.
  6. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar)
    Samþykkt sem lög.
  7. Frumvarp til laga um opinber fjármál
    Samþykkt sem lög.
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, með síðari breytingum (leyfilegur munur á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga)
    Samþykkt sem lög.
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (viðurlagaákvæði)
    Verður ekki lagt fram nú.
  10. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (fjárfestingarheimildir)
    Áformað 15. febrúar.
  11. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (viðbótartryggingavernd)
    Verður ekki lagt fram nú.
  12. Frumvarp til laga um opinber innkaup (heildarlög)
    Áformað 15. febrúar. Hugsanlega tvö frumvörp.
  13. Frumvarp til laga um ríkisaðstoð
    Verður ekki lagt fram nú.
  14. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 47/2006, um kjararáð, og fleiri lögum
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  15. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands
    Ekki síðar en 31. mars.
  16. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, lögum um Seðlabanka Íslands og lögum um neytendalán (erlend lán, varúðarreglur)
    Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd, 384. mál.
  17. Frumvarp til laga um fasteignalán til neytenda
    Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd, 383. mál.
  18. Frumvarp til laga um vátryggingastarfsemi (heildarlög)
    Útbýtt 2. desember 2015, 396. mál.
  19. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi (heildarlög)
    Áformað 14. mars.
  20. Frumvarp til laga um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum
    Áformað 17. mars.
  21. Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki
    Áformað 15. febrúar.
  22. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki (útibú, samstæðueftirlit og uppljóstrun)
    Ekki síðar en 31. mars. 
  23. Frumvarp til laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða
    Áformað 14. mars.
  24. Frumvarp til laga um afleiðuviðskipti
    Áformað 17. mars.
  25. Frumvarp til laga um skortsölu
    Áformað 15. mars.
  26. Frumvarp til laga um lánshæfismatsfyrirtæki (CRA)
    Áformað 23. mars.
  27. Frumvarp til laga um innstæðutryggingar
    Verður ekki lagt fram nú.
  28. Frumvarp til laga um slita- og skilameðferð fjármálafyrirtækja
    Verður ekki lagt fram nú.
  29. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 1/1997, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, og lögum nr. 2/1997, um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga
    Áformað 15. mars.
  30. Tillaga til þingsályktunar um meginskiptingu útgjalda fjárlaga næsta fjárlagaárs (ramma), svo og greinargerð um breytingar á tekjuöflun ríkisins
    Verður ekki lagt fram nú.

    Viðbót 
  31. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, með síðari breytingum (stöðugleikaframlag)
    Til umfjöllunar í efnahags- og viðskiptanefnd, 420. mál.
  32. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lífeyrissjóð bænda
    Áformað 24. febrúar.
  33. Frumvarp til laga vegna útboðs á aflandskrónum
    Áformað 1. mars.
  34. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skatta og gjöld á eldsneyti og ökutæki. Heildarendurskoðun
    Ekki síðar en 31. mars.
  35. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (ýmsar breytingar)
    Ekki síðar en 31. mars.
  36. Tillaga til þingsályktunar um fjármálastefnu, sbr. 4. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál
    Ekki síðar en 31. mars.
  37. Tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun skv. 5. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál 
    Ekki síðar en 31. mars.
  38. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, lögum um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki og lögum um fjármálafyrirtæki (nauðasamningagerð slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja).    
    Samþykkt sem lög. 

Heilbrigðisráðherra 

  1. Frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni 
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 229. mál.
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, og lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum (heilbrigðisþjónusta yfir landamæri,EES-reglur)
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 228. mál.
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, lögum um almannatryggingar og lögum um sjúkratryggingar (samningar sjúkratryggingastofnunar við stofnanir fyrir aldraða)
    Samþykkt sem lög.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, með síðari breytingum (lýðheilsusjóður)
    Bíður 1. umræðu, 397. mál.
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 16/2001, um lækningatæki (gjaldtaka)
    Ekki síðar en 27. janúar.
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 112/2008, um sjúkratryggingar (greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu)
    Ekki síðar en 31. mars.
  7. Frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir  
    Ekki síðar en 31. mars.
  8. Frumvarp til lyfjalaga
    Ekki síðar en 31. mars.
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra (endurskoðun ákvæða sem heyra undir heilbrigðisráðherra)
    Verður ekki lagt fram nú.
  10. Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára 
    Til umfjöllunar í velferðarnefnd, 338. mál.
  11. Tillaga til þingsályktunar um heilbrigðisstefnu til ársins 2020
    Ekki síðar en 31. mars.
  12. Skýrsla heilbrigðisráðherra um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu
    Ekki síðar en 29. febrúar.

    Viðbót 
  13. Tillaga til þingsályktunar um lyfjastefnu.
    Tillagan byggist á vinnu nefndar sem heilbrigðisráðherra skipaði til að semja drög að nýrri lyfjastefnu.
    Ekki síðar en 27. janúar. 

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra 

  1. Frumvarp til laga um almannaheillasamtök 
    Áætlaður útbýtingardagur er 1. febrúar.
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald
    Áætlaður útbýtingardagur er 19. janúar.
  3. Frumvarp til laga um sölu ökutækja 
    Áætlaður útbýtingardagur er 1. mars.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 3/2006, um ársreikninga 
    Áætlaður útbýtingardagur er 19. janúar.
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög (einföldun)
    Áætlaður útbýtingardagur er 1. mars.
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 73/2005, um skipan ferðamála (stefnumótun)
    Verður lagt fram á 146. þingi.
  7. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1995, um hlutafélög, og lögum nr. 138/1994, um einkahlutafélög (kennitöluflakk)
    Ekki síðar en 31. mars.
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  9. Frumvarp til laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna hljóðritunar tónlistar á Íslandi
    Lagt fram til kynningar í lok vorþings.
  10. Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum á sviði orkumála (lagahreinsun)
    Ekki síðar en 31. mars.
  11. Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna orkuskipta í samgöngum
    Ekki síðar en 31. mars.
  12. Skýrsla ráðherra um raforkumálefni
    Ekki síðar en 29. febrúar.

    Viðbót 
  13. Tillaga til þingsályktunar um stefnu um nýfjárfestingar
    Útbýtt 25. nóvember 2015, 372. mál. 

Innanríkisráðherra

  1. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til undirbúnings fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
    Samþykkt sem lög.
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 64/2006, með síðari breytingum (áreiðanleikakannanir,  undanþága frá áreiðanleikakönnun, eftirlit o.fl.) 
    Bíður 3. umræðu, 139. mál.
  3. Frumvarp til laga um dómstóla og um breytingu á lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála, og lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála (millidómstig)
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45/1996, um mannanöfn
    Ekki síðar en 31. mars.
  5. Frumvarp til laga um breytingu á þinglýsingalögum, nr. 39/1978, o.fl. (rafrænar þinglýsingar)
    Verður lagt fram á 146. þingi.
  6. Frumvarp til laga um útlendinga (heildarendurskoðun)
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  7. Frumvarp til laga um fullnustu refsinga (heildarendurskoðun) 
    Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd, 332. mál.
  8. Frumvarp til laga um brottfall laga um þriðju kynslóð farsíma, nr. 8/2005
    Bíður 2. umræðu, 265. mál.
  9. Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi)
    Bíður 1. umræðu, 401. mál.
  10. Frumvarp til laga um flutning verkefna til sýslumannsembætta
    Verður lagt fram á 146. þingi.
  11. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Landhelgisgæslu Íslands, nr. 52/2006 (verkefni erlendis)
    Samþykkt sem lög
  12. Frumvarp til laga um handtöku og afhendingu manna til og frá Íslandi
    Ekki síðar en 31. mars.
  13. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/2004, um siglingavernd, lögum nr. 60/1998, um loftferðir, vopnalögum, nr. 16/1998, og lögreglulögum, nr. 90/1996
    Ekki síðar en 31. mars.
  14. Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna flutnings netöryggissveitar til ríkislögreglustjóra
    Verður ekki lagt fram.
  15. Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, nr. 50/1987 
    Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, sjá einnig nr. 29 og 41 (þrjú frumvörp sameinuð), 375. mál.
  16. Frumvarp til laga um neytendasamninga Bíður 1. umræðu, 402. mál.
  17. Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum um happdrætti og talnagetraunir (framlenging starfsleyfis)
    Samþykkt sem lög.
  18. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum (sérstakt framlag úr Jöfnunarsjóði)
    Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, 263. mál.
  19. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004 (skilgreining og álagning vatnsgjalds)
    Bíður 1. umræðu, 400. mál.
  20. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um mannréttindasáttmála Evrópu, nr. 62/1994, með síðari breytingum (15.  samningsviðauki)
    Samþykkt sem lög.
  21. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 100/1952, um íslenskan ríkisborgararétt
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  22. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/1991, um meðferð einkamála (gjafsókn)
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  23. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/1991, um nauðungarsölu
    Frumvarpið hefur verið sameinað frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra um húsnæðismál sem er til umfjöllunar á þingi.
  24. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 88/2008, um meðferð sakamála (skilyrði fyrir beitingu úrræða skv. XI. kafla)
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  25. Frumvarp til laga um póstþjónustu
    Ekki síðar en 31. mars.
  26. Frumvarp til laga um farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni
    Ekki síðar en 31. mars.
  27. Frumvarp til laga um farmflutninga á landi
    Ekki síðar en 31. mars.
  28. Frumvarp til laga um vopn, sprengiefni og skotelda
    Ekki síðar en 31. mars.
  29. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 18/2013, um rannsókn samgönguslysa 
    Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, sjá einnig nr. 15 og 41 (þrjú frumvörp sameinuð), 375. mál.
  30. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 50/2000, um lausafjárkaup, o.fl.
    Ekki síðar en 31. mars.
  31. Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)
    Verður ekki lagt fram nú.
  32. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 90/1989, um aðför, o.fl. (Höfðaborgarsamningur)
    Verður lagt fram á 146. þingi.
  33. Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (takmarkanir á erlendum lántökum)
    Ekki síðar en 31. mars.
  34. Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996 (meðferð kvartana og kærumála vegna starfa lögreglu)
    Ekki síðar en 31. mars.
  35. Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2015–2026
    Ekki síðar en 15. febrúar.
  36. Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2015–2018 
    Áætlaður útbýtingardagur er 18. febrúar.
  37. Tillaga til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun 2015–2018
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  38. Tillaga til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun 2015–2026
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  39. Skýrsla ráðherra til Alþingis um öryggismál  
    Ekki síðar en 15. mars.
  40. Skýrsla ráðherra til Alþingis um stöðu og stefnumörkun í mannréttindamálum
    Ekki síðar en 15. mars.

    Viðbót 
  41. Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, siglingalögum og um breytingu á lögum um rannsókn samgönguslysa (EES-innleiðing), bandormur.
    Til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd, sjá einnig nr. 15 og 29 (þrjú frumvörp sameinuð), 375. mál.
  42. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/1998,  um loftferðir.
    Nauðsynlegar lagabreytingar svo hægt sé að innleiða reglugerð (ESB) um tilkynningarskyldu vegna flugslysa og flugatvika. EES-innleiðing.
    Ekki síðar en 31. mars.
  43. Frumvarp til laga um breytingu á siglingalögum, nr. 34/1985 (hækkun takmörkunarfjárhæða).
    Hækkun takmörkunarfjárhæða sem er að finna í 2. og 3. mgr. 177. gr. siglingalaganna vegna breytinga sem orðið hafa á alþjóðasáttmála um takmörkun á ábyrgð útgerðarmanna (Convention on Limitation of Liability for Maritime Claims) sem Ísland er aðili að.
    Ekki síðar en 15. mars.
  44. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna.
    Lögð er annars vegar til breyting vegna aðgangs Þjóðskrár Íslands að gögnum til ákvörðunar við mat á fasteignum og hins vegar er lögð til hækkun gjalds fyrir rafræn veðbandayfirlit. Lagafrumvarpið felur í sér breytingar á 22. og 24. gr. laga um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum. Í 22. gr. laganna er fjallað um heimildir Þjóðskrár Íslands til aðgangs að skattframtölum við ákvörðun matsverðs atvinnuhúsnæðis. Varðar breytingin að heimila Þjóðskrá aðgang að leigusamningum sem berast ríkisskattstjóra í því skyni að meta gangverð fasteignar út frá tekjuöflunarhæfni hennar. Í 24. gr. er fjallað um fjármögnun á starfsemi Þjóðskrár Íslands og er í frumvarpsdrögunum lagt til að gjald fyrir rafræn veðbandayfirlit verði hækkað úr 850 kr. í 1.050 kr.
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  45. Frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum, nr. 90/1996 (menntun lögreglumanna).
    Í frumvarpinu verði kveðið á um framtíðarfyrirkomulag lögreglumenntunar með hliðsjón af skýrslu starfshóps frá júní 2015.
    Ekki síðar en 15. mars.
  46. Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (hryðjuverk).
    Markmið frumvarpsins er að innleiða ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 2178/2014 um erlenda bardagamenn, ásamt því að fullgilda samning Evrópuráðsins um varnir gegn hryðjuverkum frá árinu 2005 og viðbótarbókun við hann frá árinu 2015 sem tekur á fyrrnefndri ályktun öryggisráðsins.
    Ekki síðar en 31. mars.
  47. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006, með síðari breytingum (B-gatnagerðargjald).
    Samþykkt sem lög.
  48. Skýrsla  innanríkisráðherra um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum.
    Útbýtt 24. september 2015.
  49. Skýrsla innanríkisráðherra um framkvæmd samgönguáætlunar 2013.
    Útbýtt 6. október 2015.

Mennta- og menningamálaráðherra 

  1. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (höfundaréttargjald á stafræna geymslumiðla) 
    Útbýting er áætluð fyrir 29. febrúar. Framlagning hefur tafist vegna vandkvæða við að meta kostnaðaráhrif frumvarpsins.
  2. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (endurskoðun höfundalaga, einkaréttindi höfunda og samningskvaðir)
    333. mál á Alþingi, útbýtt 10. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd.
  3. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (lenging verndartíma hljóðrita)
    362. mál á Alþingi, útbýtt 24. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á höfundalögum, nr. 73/1972, með síðari breytingum (innleiðing tilskipunar, munaðarlaus verk)
    334. mál á Alþingi, útbýtt 10. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd.
  5. Frumvarp til laga um sameiginlega umsýslu höfundaréttar og fleira (tilskipun 2014/26/ESB um starfshætti rétthafasamtaka og fjölsvæða leyfi fyrir afnot tónlistar á netinu)  
    Frumvarpið er í vinnslu og enn er stefnt að framlagningu þess á vorþingi. Tafir á upptöku gerðarinnar í EES-samninginn kunna hins vegar að leiða til frestunar á þeim áformum.
  6. Endurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna, nr. 21/1992 (ný heildarlög)
    Ekki síðar en 31. mars.
  7. Frumvarp til laga um tónlistarskóla (heildarlög, fjárstuðningur ríkisins)
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 91/2008, um grunnskóla (kæruleiðir, valdmörk og starfræksla frístundaheimila)
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 87/2008, um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla (endurskoðun)
    Verður ekki lagt fram nú.
  10. Frumvarp til laga um sjálfstætt starfandi grunnskóla
    Ekki síðar en 31. mars.
  11. Frumvarp laga um breytingu á kvikmyndalögum, nr. 137/2001 (ESA, viðeigandi ráðstafanir) 
    Verður ekki lagt fram nú. Stefnt er að því að frumvarp verði lagt fram á 146. löggjafarþingi.
  12. Frumvarp til sviðslistalaga
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  13. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 102/1980, um Grænlandssjóð
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  14. Frumvarp til laga um bókmenntasjóð (greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum) 
    Hætt er við framlagningu frumvarpsins. Í þess stað munu ráðherra og Rithöfundasamband Íslands undirrita viljayfirlýsingu um bókasafnasjóð höfunda.
  15. Skýrsla mennta- og menningarmálaráðherra um framkvæmd skólastarfs í framhaldsskólum skólaárin 2008–2009 til 2012–2013
    Kynning skýrslunnar er áætluð í janúar.

    Viðbót 
  16. Frumvarp til laga um styrki vegna sýninga á kvikmyndum á íslensku í kvikmyndahúsum hér á landi (miðastyrkir). 
    369. mál á Alþingi, útbýtt 25. nóvember 2015. Til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd. 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir, lögum nr. 55/1998, um sjávarafurðir, og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (eftirlit, starfsleyfi, viðurlög, EES-samningurinn)
    Ekki síðar en 15. febrúar.
  2. Frumvarp til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993 (búvörusamningar) 
    Áætlaður útbýtingardagur er 14. mars. 
  3. Frumvarp til laga um breytingu á búnaðarlögum, nr. 70/1998 (búvörusamningar)
    Áætlaður útbýtingardagur er 14. mars 2016.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 89/1966, um Framleiðnisjóð landbúnaðarins (endurskoðun)
    Verður ekki lagt fram nú.
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar (vigtun sjávarafla, afladagbók)
    Ekki síðar en 31. mars.
  6. Frumvarp til laga um haf- og vatnarannsóknir (heildarlög)
    Samþykkt sem lög.
  7. Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar (haf- og vatnarannsóknir sameinaðar í einni stofnun)
    Samþykkt sem lög.
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands  (vinnsla þangs og þara)
    Ekki síðar en 29. apríl.
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 79/2005, um uppboðsmarkaði sjávarafla
    Ekki síðar en 29. apríl.
  10. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, nr. 37/1992
    Til umfjöllunar í atvinnuveganefnd, 385. mál.
  11. Tillaga til þingsályktunar um áætlun til sex ára um meðferð og ráðstöfun aflamagns sem dregið er frá heildarafla (5,3% aflaheimilda til sérstakra ráðstafana á sviði byggða- og atvinnumála)
    Ekki síðar en 29. apríl.
  12. Skýrsla sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um starfsemi Byggðastofnunar og framvindu byggðaáætlunar
    Ekki síðar en 31. mars. 

Umhverfis- og auðlindaráðherra 

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 103/2006, um landmælingar og grunnkortagerð (afmörkun á nákvæmni landupplýsinga)
    Ekki síðar en 31. mars.
  2. Frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum (heildarlög)
    Til umfjöllunar  í umhverfis- og samgöngunefnd, 133. mál.
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, með síðari breytingum (almannaréttur og fleiri ákvæði)
    Samþykkt sem lög.
  4. Frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum, nr. 123/2010 (grenndarkynning)
    Bíður 2. umræðu, 225. mál.
  5. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur (fullgilding Kartagena-bókunar, verkaskipting Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar)
    Verður ekki lagt fram nú.
  6. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð (breyting á stjórnfyrirkomulagi og aðrar breytingar)
    Ekki síðar en 1. mars.
  7. Frumvarp til laga um timbur og timburvörur (heildarlög)
    Ekki síðar en 31. mars.
  8. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs (innleiðingar Evrópugerða, stjórnvaldssektir o.fl.)
    Ekki síðar en 29. febrúar.
  9. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 9/2009, um uppbyggingu og rekstur fráveitna
    Bíður 1. umræðu, 404. mál.
  10. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, og lögum nr. 75/2000, um brunavarnir 
    Ekki síðar en 1. mars. 
  11. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur og lögum um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu (sameining stofnana)
    Til umfjöllunar  í umhverfis- og samgöngunefnd, 504. mál.
  12. Frumvarp til laga um Umhverfisstofnun (heildarlög)
    Ekki síðar en 31. mars.
  13. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir (hlutverk eftirlitsaðila, stjórnvaldssektir, umhverfisupplýsingar o.fl.)
    Ekki síðar en 31. mars.
  14. Frumvarp til laga um skipulag hafs og stranda (heildarlög)
    Ekki síðar en 31. mars.
  15. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum, m.a. lögum nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda (upptaka refsiákvæða vegna tiltekinna brota sem varða umhverfið)
    Ekki síðar en 31. mars.
  16. Frumvarp til laga um skógrækt (heildarlög)
    Ekki síðar en 31. mars.
  17. Frumvarp til laga um landgræðslu (heildarlög)
    Ekki síðar en 31. mars.
  18. Tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015–2026
    Til umfjöllunar  í umhverfis- og samgöngunefnd, 101. mál.
  19. Tillaga til þingsályktunar um landsáætlun um uppbyggingu innviða
    Ekki síðar en 31. mars.

    Viðbót 
  20. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna nýrrar skógræktarstofnunar (sameining stofnana).
    Með frumvarpinu er lagt til að sameina Skógrækt ríkisins og landshlutaverkefni í skógrækt í nýja stofnun, Skógræktina. Um er að ræða bandorm vegna þeirrar sameiningar. Heildarendurskoðun á lögum um skógrækt mun halda áfram samhliða sameiningunni.
    Ekki síðar en 1. mars. 

Utanríkisráðherra 

  1. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands o.fl. (skipulag)
    Samþykkt sem lög.
  2. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið (uppbyggingarsjóður EES)
    Ekki síðar en 31. mars.
  3. Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 38/2010, um Íslandsstofu
    Ekki síðar en 31. mars.
  4. Tillaga til þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland
    Til umfjöllunar í utanríkismálanefnd, 327. mál.
  5. Tillaga til þingsályktunar um stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2017–2021
    Ekki síðar en 31. mars.
  6. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum vegna ársins 2016
    Ekki síðar en 31. mars.
  7. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2016
    Ekki síðar en 31. mars.
  8. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn
    Ekki síðar en 31. mars.
  9. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir, vottun) við EES-samninginn
    Samþykkt á Alþingi.
  10. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn
    Samþykkt á Alþingi.
  11. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn
    Samþykkt á Alþingi.
  12. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 28/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
    Samþykkt á Alþingi.
  13. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2015 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) við EES-samninginn
    Ekki síðar en 31. mars.
  14. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
    Verður ekki lagt fram (innleiðing fór fram með reglugerð).
  15. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
    Bíður fyrri umræðu, 430. mál.
  16. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn
    Bíður fyrri umræðu, 431. mál.
  17. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 117/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn
    Samþykkt á Alþingi.
  18. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 122/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn
    Samþykkt á Alþingi.
  19. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 143/2015 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn
    Samþykkt á Alþingi.  
  20. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu breytinga á Rómarsamþykktinni um Alþjóðlega sakamáladómstólinn varðandi glæpi gegn friði
    Ekki síðar en 31. mars.
  21. Skýrsla utanríkisráðherra til Alþingis um utanríkismál
    Verður rædd 17. mars.

    Viðbót 
  22. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu bókunar um aðild Lýðveldisins Gvatemala að fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Mið-Ameríkuríkjanna
    Ekki síðar en 31. mars.
  23. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu samnings Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur. 
    Um er að ræða samning Íslands og ESB um frekari gagnkvæmar ívilnanir í viðskiptum með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og bókun 3 við sama samning.
    Ekki síðar en 31. mars.
  24. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 188/2015 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.
    Bíður fyrri umræðu, 432. mál.
  25. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.
    Bíður fyrri umræðu, 433. mál. 
  26. Tillaga til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2015 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn
    Bíður fyrri umræðu, 434. mál.
  27. Frumvarp til laga um Háskólastofnun Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
    Með frumvarpinu verður sett á stofn á Íslandi sérstök stofnun Háskóla Sameinuðu þjóðanna, sem þeir fjórir skólar Sameinuðu þjóðanna sem eru á Íslandi (Jarðhitaskólinn, Sjávarútvegsskólinn, Landgræðsluskólinn og Jafnréttisskólinn) munu falla undir. Slík stofnun er forsenda þess að skólarnir fái að starfa áfram undir merkjum Sameinuðu þjóðanna. Í frumvarpinu verður heimild til fullgildingar tveggja samninga við Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tokyo um framangreint, auk nauðsynlegra lagabreytinga sem tengjast m.a. friðhelgi og réttarstöðu stofnunarinnar, starfsmannamálum, skattamálum o.fl.
    Ekki síðar en 31. mars.
  28. Tillaga til þingsályktunar um fullgildingu stofnsamnings um Innviðafjárfestingabanka Asíu.
    Bíður fyrri umræðu, 436. mál. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum