100 síðustu fréttir frá ráðuneytunum

4.2.2012 Velferðarráðuneytið Alþjóðlegur baráttudagur gegn krabbameinum

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra skrifar um baráttu gegn krabbameinum í blaðagrein í dag í tilefni alþjóðlegs baráttudags. Yfir 100 þjóðir taka þátt til að þrýsta á um að barátta gegn krabbameinum verði pólitískt viðfangsefni um allan heim.

Lesa meira
 
Fjölbýli

4.2.2012 Velferðarráðuneytið Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar

Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og velferðarráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar nú í febrúar og mars. Lesa meira

Lesa meira
 
Embætti landlæknis

3.2.2012 Velferðarráðuneytið Embætti landlæknis ráðleggur brottnám allra PIP brjóstafyllinga

Í ljósi nýrrar skýrslur sérfræðingahópsins SCENIHR um PIP brjóstafyllingar telur landlæknir ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öllum konum sem þær bera.

Lesa meira
 
Mennta- og menningarmálaráðherra ávarpar ráðstefnu Iðnmenntar

3.2.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Mennta- og menningarmálaráðherra ávarpar ráðstefnu Iðnmenntar

Katrín Jakobsdóttir ávarpaði fulltrúa á ráðstefnu Iðnmenntar, sem haldið var 3. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Starfsmenntun, skóli – atvinnulíf. Gildi starfsmenntunar í íslensku samfélagi“.

Lesa meira
 

3.2.2012 Velferðarráðuneytið Úthlutun styrkja til gæðaverkefna í velferðarþjónustu

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að veita gæðastyrki til átta verkefna í velferðarþjónustu sem tengjast samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Styrkirnir nema samtals 2,4 milljónum króna.

Lesa meira
 
Íþróttastarf í þágu þjóðarinnar

3.2.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Íþróttastarf í þágu þjóðarinnar

Ávarp Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra á 100 ára afmæli Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, 28. janúar 2012.
Lesa meira
 

3.2.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Rétturinn til að njóta ávaxtanna af vinnu sinni

Ávarp Katrínar Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra á málþingi BÍL um höfundarétt, 28. janúar 2012 í Iðnó.
Lesa meira
 
Starfshópur skilaði innanríkisráðherra skýrslu um gildi nýrra fjármálareglna fyrir sveitarfélög.

3.2.2012 Innanríkisráðuneytið Skýrsla um gildi fjármálareglna afhent innanríkisráðherra

Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði síðastliðið haust til að meta gildi fjármálareglna fyrir sveitarfélög sem lögfestar eru í nýjum sveitarstjórnarlögum hefur skilað skýrslu sinni. Telur hópurinn að fjármálareglurnar geri nýjar og ákveðnar kröfur til sveitarstjórna um fjármálastjórn.

Lesa meira
 
co2

3.2.2012 Umhverfisráðuneyti Drög að frumvarpi til laga um loftslagsmál til umsagnar

Umhverfisráðuneytið óskar eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til laga um loftslagsmál. Með frumvarpinu er lagt til að í fyrsta skipti verði hér á landi sett heildarlöggjöf um loftslagsmál.

Lesa meira
 

3.2.2012 Velferðarráðuneytið Mat á niðurstöðum sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyllingar

Íslensk heilbrigðisyfirvöld fjalla nú um niðurstöður sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyllingar til að meta hvort þær gefi tilefni til endurskoðunar á aðgerðum stjórnvalda sem kynntar voru 10. janúar síðastliðinn. Einnig er horft til fyrstu niðurstaðna úr ómskoðunum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.

Lesa meira
 

3.2.2012 Innanríkisráðuneytið Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2012. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Lesa meira
 
Skip við bryggju.

2.2.2012 Umhverfisráðuneyti Samráð um losun gróðurhúsalofttegunda frá skipum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sett af stað samráðsferli á netinu um hvernig draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda frá skipum. Meðal annars er horft til viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda.

Lesa meira
 

2.2.2012 Efnahags- og viðskiptaráðuneytið Skýrsla um þróun efnahagsmála send ESB

Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins skýrslu um íslensk efnahagsmál (Pre-Accession Economic Programme).
Lesa meira
 
Dagur leikskólans 6. febrúar

2.2.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Dagur leikskólans mánudaginn 6. febrúar 2012

Mánudaginn 6. febrúar  verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins.  6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. 

Lesa meira
 
Umsóknarfrestur vegna fjarskiptaáætlunar að renna út

1.2.2012 Innanríkisráðuneytið Innanríkisráðherra mælti fyrir fjarskiptaáætlun á Alþingi

Tillögur til þingsályktunar um fjögurra og tólf ára fjarskiptaáætlanir voru til umræðu á Alþingi í dag þegar innanríkisráðherra mælti fyrir þeim en umræðum var frestað og síðari mál tekin af dagskrá. Þá lauk umræðu í gær um samgönguáætlanir og ganga þær nú til meðferðar umhverfis- og samgöngunefndar.

Lesa meira
 
Skrifað var undir samning um almenningssamgöngur á Suðurnesjum 1. febrúar.

1.2.2012 Innanríkisráðuneytið Samið um almenningssamgöngur á Suðurnesjum

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) og Vegagerðin undirrituðu í dag samning um skipulagningu almenningssamgangna milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Er verkefnið í samræmi við þá áherslu ríkisstjórnarinnar að greiða fyrir auknum hlut almenningssamgangna.

Lesa meira
 

1.2.2012 Forsætisráðuneyti Ríkisstjórnin þriggja ára

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tók við völdum 1. febrúar 2009 í kjölfar stjórnarslita Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hún hefur því verið við völd í landinu samfellt í þrjú ár.

Lesa meira
 
Bifröst

1.2.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Samningur gerður við Háskólann á Bifröst

Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Háskólinn á Bifröst hafa gert þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.

Lesa meira
 
netöryggisdagurinn2012

1.2.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 7. febrúar 2012

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar næstkomandi.

Lesa meira
 

1.2.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Auglýsing frá Menningarsjóði Íslands og Finnlands

Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands.  Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina.
Lesa meira
 

1.2.2012 Fjármálaráðuneytið KÍ óskar ráðherra til hamingju með starfið

Dagur kvenfélagskonunnar er í dag, 1. febrúar. Forystukonur Kvenfélagasambandsins nýttu daginn til að færa Oddnýju G. Harðardóttur hamingjuóskir með að vera fyrsta konan til að gegna stöðu fjármálaráðherra Íslands.

Lesa meira
 
Lán til ferðaþjónustu 2011

1.2.2012 Iðnaðarráðuneyti Heildarútlán Byggðastofnunar til ferðaþjónustu alls 4,6 milljarðar

Í árslok 2011 voru heildarútlán Byggðastofnunar til fyrirtækja í ferðaþjónustu um 4,6 milljarðar. Þar af voru tæpir 1,4 milljarðar til fyrirtækja í fjórum sveitarfélögum, Hornafirði, Mýrdalshreppi, Skútustaðarhreppi og Skaftárhreppi. 

Lesa meira
 
Lyfjamál

1.2.2012 Velferðarráðuneytið Rafræn lyfjaskírteini auka hagræði og öryggi sjúklinga

Öll apótek í landinu hafa nú verið tengd við réttindakerfi Sjúkratrygginga Íslands. Þar með hafa apótekin ávallt nýjustu upplýsingar um rétt fólks til greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna lyfjakaupa og hvort viðkomandi njóti þeirra afsláttarkjara sem fylgja lyfjaskírteinum.

Lesa meira
 
Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra eru hér við Auðunarstofu á Hólum.

1.2.2012 Innanríkisráðuneytið Innanríkisráðherra kynnti sér kirkjumál og prentminjar á Hólum

Fulltrúar þjóðkirkjunnar og Háskólans á Hólum kynntu ýmsa þætti kirkju-, menningar- og skólastarfs á Hólum í Hjaltadal fyrir innanríkisráðherra í heimsókn hans þangað um síðustu helgi. Var einnig rætt um ýmsar hugmyndir um framtíðarverkefni á Hólum.

Lesa meira
 
Innanríkisráðherra ræddi við fulltrúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar um samgöngumál og fleira á fundi þar á laugardag.

31.1.2012 Innanríkisráðuneytið Ræddi samgöngumál við sveitarstjórn Skagafjarðar

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra átti á laugardag fund með fulltrúum byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Var þar fjallað um ýmis mál er snerta byggðarlagið, meðal annars innanlandsflug, vegamál og sameiningu sýslumanns- og lögregluembætta.

Lesa meira
 

31.1.2012 Fjármálaráðuneytið Um yfirfærslu lána milli gömlu og nýju bankanna

Að gefnu tilefni vegna umræðu um mat á þeim eignum (útlánum) sem nýju bankarnir tóku við í október 2008, einkum í tengslum við nýútkomna skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans, vill fjármálaráðuneytið koma á framfæri athugasemdum er varða samningagerð og mat eigna í tengslum við stofnsetningu nýju bankanna.

Lesa meira
 
Frá undirritun friðlýsingarinnar í gær.

31.1.2012 Umhverfisráðuneyti Tvö svæði í Skerjafirði innan Kópavogs friðlýst

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur staðfest friðlýsingu hluta Skerjafjarðar innan bæjarmarka Kópavogs með fjörum og grunnsævi. Um er að ræða tvö strandsvæði, annars vegar sem liggur sunnan byggðarinnar að Kópavogi og hins vegar norðan við sveitarfélagið að Fossvogi, samtals 62,6 hektarar.

Lesa meira
 
Leikskólabörn

31.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Mikilvægi leikskólamenntunar

Mennta- og menningarmálaráðherra tók þátt í OECD ráðstefnu og hringborðsumræðum um mikilvægi menntunar og umönnunar barna á leikskólaaldri, sem haldin var nýlega í Osló.
Lesa meira
 
Velferðarráðuneytið

31.1.2012 Velferðarráðuneytið Athugun á starfsemi einkarekinna læknastofa

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að stofna ráðgjafahóp til að fara í saumana á faglegum þáttum í starfsemi einkarekinna læknastofa og gera tillögur til úrbóta eftir því sem þörf krefur. Ráðherra kynnti ákvörðun sína á fundi ríkisstjórnar í dag.

Lesa meira
 

30.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Rannsóknir á starfi leikskóla

Fimm sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu gera samning við Háskóla Íslands um rannsóknir á starfi leikskóla.
Lesa meira
 

30.1.2012 Fjármálaráðuneytið Fjármálaráðherrar Íslands og Grænlands hittast

Maliina Abelsen, landstjórnarfulltrúi sem fer með ábyrgð fjármála á Grænlandi, er stödd hér á landi í vinnuheimsókn þar sem hún kynnti sér meðal annars starfssemi orkufyrirtækja. 

Lesa meira
 
Þingforseti Svartfjallalands í heimsókn

27.1.2012 Forsætisráðuneyti Heimsókn þingforseta Svartfjallalands lokið

Forseti þjóðþings Svartfjallalands, Ranco Krivokapic, heimsótti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á lokadegi opinberrar heimsóknar sinnar hingað til lands, 26. janúar síðastliðinn. 

Lesa meira
 
Rætt var um tjáningarfrelsi og lýðræði á morgunverðarfundi innanríkisráðuneytisins.

27.1.2012 Innanríkisráðuneytið Rætt um um tjáningarfrelsi og lýðræði

Rætt var um tjáningarfrelsi og lýðræði á öðrum fundi fundaraðar innanríkisráðuneytisins um mannréttindamál sem haldinn var í dag. Flutt voru þrjú erindi og síðan urðu líflegar umræður.

Lesa meira
 

27.1.2012 Forsætisráðuneyti Hagfræðistofnun metur afskriftir fasteignalána

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur að beiðni forsætisráðherra metið það svigrúm til niðurfærslu fasteignalána sem til varð þegar þau voru færð frá gömlu bönkunum yfir í nýju bankana.

Lesa meira
 
Valdimar Halldórsson

27.1.2012 Efnahags- og viðskiptaráðuneytið Nýr aðstoðarmaður efnahags- og viðskiptaráðherra

Valdimar Halldórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar efnahags- og viðskiptaráðherra.
Lesa meira
 
Hjörleifshöfði

27.1.2012 Umhverfisráðuneyti Vinna við frumvarp til nýrra náttúruverndarlaga hafin

Vinna er hafin við að semja drög að frumvarpi til náttúruverndarlaga en heildarendurskoðun þeirra stendur nú yfir.

Lesa meira
 
Skóli

27.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Nemendum í framhalds- og háskólum fjölgar

Skráðum nemendum fjölgar um 3,1% frá fyrra ári og með þeirri fjölgun er sú fækkun sem varð á síðasta ári að mestu gengin til baka.
Lesa meira
 
Hreindýr.

27.1.2012 Umhverfisráðuneyti Hreindýrakvóti ársins 2012 ákveðinn

Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1009 dýr á árinu sem er fjölgun um átta dýr frá fyrra ári.

Lesa meira
 
Gunnar Axel Axelsson

27.1.2012 Velferðarráðuneytið Nýr aðstoðarmaður velferðarráðherra

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ráðið Gunnar Axel Axelsson í starf aðstoðarmanns, í samræmi við 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Gunnar Axel er viðskiptafræðingur að mennt og situr í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Lesa meira
 

27.1.2012 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Auknar heimildir til loðnuveiða

Í júní 2011 lagði Hafrannsóknastofnunin til að bráðabirgðaaflamark í loðnu yrði 732 þúsund tonn fyrir haust- og vetrarvertíðina 2011/2012.
Lesa meira
 
Alþingishúsið

26.1.2012 Velferðarráðuneytið Frumvarp um sameiningu vistunarmatsnefnda

Nefndir sem annast mat á þörf fólks fyrir vistun í dvalarrými eða hjúkrunarrými verða sameinaðar, samþykki Alþingi frumvarp þess efnis sem Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mælti fyrir á Alþingi í dag. Markmið breytinganna er að auðvelda fólki að sækja um stofnanavistun og einfalda stjórnsýsluna.

Lesa meira
 

26.1.2012 Fjármálaráðuneytið Tollkvóti fyrir kartöflunasl frá Noregi

Með vísan til reglugerðar nr. 25/2012, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 18. janúar 2012, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan.

Lesa meira
 
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra

26.1.2012 Velferðarráðuneytið Er barnalýðræði á Íslandi?

Ávarp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á málþingi Þroskaþjálfafélags Íslands um barnalýðræði á Íslandi.

Lesa meira
 

26.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Styrkir til námsdvalar í Litháen skólaárið 2012-2013

Stjórnvöld í Litháen bjóða fram styrki handa Íslendingum til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2012-2013. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum, fræðimönnum eða kennurum til náms í litháísku eða baltneskum fræðum og eru til 5-10 mánaða.
Lesa meira
 
Euroweek Awards

25.1.2012 Fjármálaráðuneytið Skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs meðal þeirra bestu

Enn vekur alþjóðleg skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs Íslands frá því í júní sl.mikla athygli. Fagtímaritið Euroweek hefur valið útgáfu Íslands meðal þeirra bestu í vali sínu á bestu skuldabréfaútgáfum ársins 2011.

Lesa meira
 
Frá blaðamannafundi innanríkisráðherra um málefni Landeyjahafnar.

25.1.2012 Innanríkisráðuneytið Áhersla lögð á smíði nýrrar ferju og aðlögun Landeyjahafnar

Innanríkisráðherra hefur ásamt fulltrúum Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar farið yfir stöðuna varðandi siglingar í Landeyjahöfn. Hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið, líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn og rannsóknir sem framundan eru. Við fjármögnun verður litið til verkefnisins í heild, þ.e. smíði nýrrar ferju og aðgerða til aðlögunar Landeyjahafnar að breyttum náttúrulegum aðstæðum.

Lesa meira
 

25.1.2012 Innanríkisráðuneytið Skipan sérfræðingahóps um framtíðarfyrirkomulag rannsókna og saksókna í efnahagsbrotamálum

Innanríkisráðherra hefur skipað sérfræðingahóp til að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og leggja fram tillögur að hagfelldu heildarskipulagi slíkra rannsókna.

Lesa meira
 

25.1.2012 Velferðarráðuneytið Ráðstefna 10. febrúar: Notendastýrð persónuleg aðstoð

Verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð heldur ráðstefnu 10. febrúar þar sem kynnt verður hugmyndafræði, framkvæmd og skipulag slíkrar þjónustu. Ráðstefnan verður einnig send út á Netinu.

Lesa meira
 
Guðmundur Kristjánsson formaður starfshóps um strandsiglingar skilaði tillögum til Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í morgun.

24.1.2012 Innanríkisráðuneytið Leggja til að strandsiglingar verði boðnar út með ríkisstyrk

Starfshópur innanríkisráðherra um hvernig koma megi strandsiglingum á að nýju hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Leggur hópurinn til að leitað verði tilboða í siglingarnar samkvæmt ákveðnum forsendum þar sem boðið verði í meðgjöf ríkisins til nokkurra ára meðan siglingarnar koma undir sig fótunum. Miðað er við tilraunaverkefni til nokkurra ára og að því loknu standi siglingarnar undir sér.

Lesa meira
 
Við undirritun byggingarreglugerðar í dag.

24.1.2012 Umhverfisráðuneyti Ný byggingarreglugerð undirrituð

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritaði í dag nýja byggingarreglugerð. Reglugerðin er sérlega yfirgripsmikil enda tekur hún til fjölda atriða sem snerta daglegt líf og aðbúnað almennings.

Lesa meira
 
Velferðarráðuneytið í janúar 2012

24.1.2012 Velferðarráðuneytið Leiðbeinandi reglur um ýmsa þjónustu við fatlað fólk

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur gefið út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk. Reglurnar taka til þjónustu stuðningsfjölskyldna, ferðaþjónustu, styrkja til náms og til verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.

Lesa meira
 
Listasafn Íslands

24.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti "Góð myndlist opnar augu okkar"

Ávarp Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra við opnun sýningarinnar „Í afbyggingu“ 13. janúar 2012 í Listasafni Íslands.   

Lesa meira
 

24.1.2012 Fjármálaráðuneytið Listi yfir forstöðumenn 24. janúar 2012

Listi yfir forstöðumenn skv. 2. mgr. 22. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996 með síðari breytingum.
Lesa meira
 

24.1.2012 Fjármálaráðuneytið Morgunverðarfundur um bætta umgjörð fjárlagagerðar

Félag forstöðumanna ríkisstofnana og fjármálaráðuneytið í samvinnu við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boða til morgunverðarfundar 25. janúar nk. um bætta umgjörð fjárlagagerðar. Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, mun flytja erindi ásamt fleirum.

Lesa meira
 

23.1.2012 Velferðarráðuneytið Samningur um ómskoðun vegna PIP brjóstapúða

Velferðarráðuneytið og Krabbameinsfélag Íslands (KÍ) hafa undirritað samning um að Leitarstöð KÍ annist ómskoðanir kvenna sem fengið hafa ígrædda PIP brjóstapúða á árunum 2000-2010. Bréf velferðarráðuneytisins með boði til kvennanna um ómskoðun verða send út á morgun, 24. janúar.

Lesa meira
 
Grænmeti á markaði.

23.1.2012 Umhverfisráðuneyti Spurt um viðhorf til sjálfbærrar neyslu og framleiðslu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sett af stað samráðsferli á netinu þar sem óskað er eftir áliti og upplýsingum frá almenningi um hvernig best megi stuðla að sjálfbærri neyslu, framleiðslu og iðnaði.

Lesa meira
 

23.1.2012 Iðnaðarráðuneyti KreaNord opnar nýja vefsíðu

KreaNord heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og sköpunariðnaði
Lesa meira
 

23.1.2012 Iðnaðarráðuneyti KreaNord opnar nýja vefsíðu

 

KreaNord heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og
sköpunariðnaði.
KreaNord  heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og
sköpunariðnaði.

KreaNord  heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og
sköpunariðnaði. Fræðist um skapandi greinar á Norðurlöndum, skráið ykkur og
tengist stærsta tengslaneti á sviði skapandi greina á Norðurlöndum.

Nýja vefsíðan

Lesa meira
 

23.1.2012 Innanríkisráðuneytið Morgunverðarfundur um tjáningarfrelsi og lýðræði

Innanríkisráðuneytið efnir til annars fundar í fundarröð um mannréttindamál föstudaginn 27. janúar næstkomandi klukkan 8.30 til 10 í Iðnó í Reykjavík. Efni fundarins verður tjáningarfrelsi og lýðræði.

Lesa meira
 

23.1.2012 Innanríkisráðuneytið Skráning hafin á málþing um sveitarstjórnarmál

Málþing um sveitarstjórnarmál verður haldið á Akureyri föstudaginn 10. febrúar næstkomandi á vegum nefndar innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins en í henni eiga einnig sæti fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þátttakendur geta skráð sig á málþingið með því að senda tölvupóst á netfangið arny.g.olafsdottir@irr.is.

 

Lesa meira
 
Hækkandi sól - Ein góð frétt á dag

23.1.2012 Iðnaðarráðuneyti Íslandsmet í komu erlendra ferðamanna!

Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vöru og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur!

Lesa meira
 
Kringum 200 manns sóttu ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu.

20.1.2012 Innanríkisráðuneytið Finnum leiðir til að bæta meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu

Það er okkar von að ráðstefnan verði til þess að efla enn frekar umræðu um kynferðisbrot á Íslandi. Hugsanlega finnum við leiðir til að breyta og bæta meðferð þeirra í réttarkerfinu, sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra meðal annars þegar hann setti ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu í dag. Þar var meðal annars fjallað um ýmsar hliðar á vernd barna fyrir kynferðislegri misneytingu, málsmeðferð, lagabreytingar og hlutverk ákæruvaldsins.

Lesa meira
 

20.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Um skilmála styrks frá mennta- og menningarmálaráðuneyti

Upplýsingar um skilmála styrkja frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Lesa meira
 

20.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Deildarstjóri á skrifstofu menntamála

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra í framhaldsskóladeild á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.

Lesa meira
 

20.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Sérfræðingur á skrifstofu menntamála

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í málefnum leik- og grunnskóla á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.

Lesa meira
 

20.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2012

Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.
Lesa meira
 

19.1.2012 Fjármálaráðuneytið Lækkun skattbyrðar - grein fjármálaráðherra

Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, birti grein í Fréttablaðinu þann 18. janúar. Greinin fjallar um samanburð á tekjuskattbyrði einstaklinga síðastliðin ár og hversu mikilvægt það er að þeir útreikningar og forsendur sem notast er við í skattaumræðunni séu réttir. Greinina má lesa hér.

Lesa meira
 
Besti ríkisvefurinn 2011

19.1.2012 Velferðarráðuneytið Tryggingastofnun ríkisins með besta opinbera vefinn

Vefur Tryggingastofnunar ríkisins tr.is var útnefndur besti ríkisvefurinn í úttekt þar sem lagt var mat á 267 opinbera vefi hjá ríki og sveitarfélögum. Í niðurstöðu dómnefndar segir að vefurinn geymi gríðarlegt magn upplýsinga sem eru settar fram á skýran og aðgengilegan hátt.

Lesa meira
 
Katrín Jakobsdóttir

19.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Stefnumótun um starfsþróun og símenntun kennara

Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra á fundi 13. janúar 2012,  um símenntun og starfsþróun kennara með stjórn KÍ,
stjórnum og skólamálanefndum aðildarfélaga og fulltrúum KÍ í stjórnum endurmenntunarsjóða.

Lesa meira
 

18.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Tilraunaverkefni um ytra mat á grunnskólum

Ytra mat á leik- og grunnskólum er lögbundið verkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis og sveitarfélaga. Vorið 2011 lagði faghópur um ytra mat fram tillögu um útfærslu á ytra mati á grunnskólum, sameiginlegu verkefni ráðuneytis og sveitarfélaga.

Lesa meira
 

18.1.2012 Iðnaðarráðuneyti Skýrsla um lagaramma orkumála

Skýrsla starfshóps iðnaðarráðherra um lagaramma orkumála var kynnt í ríkisstjórn 17. janúar. Í skýrslunni er greining á þeim álitaefnum sem tengjast fyrirkomulagi á orkumarkaði og eignarhaldi orkuvinnslu.

Lesa meira
 
Fulltrúi Akureyrarbæjar, Kristján Ævarsson, tók við viðurkenningunni fyrir hönd bæjarins.

18.1.2012 Innanríkisráðuneytið Viðurkenningar veittar fyrir bestu opinberu vefina

Niðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á fundi í dag undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Hlaut vefur Tryggingastofnunar viðurkenninguna besti ríkisvefurinn 2011 og vefur Akureyrarbæjar viðurkenninguna besti sveitarfélagavefurinn 2011.

Lesa meira
 
Borgarar

18.1.2012 Velferðarráðuneytið Evrópsk könnun á viðhorfum sem varða málefni aldraðra

Íslendingar hafa jákvæðara viðhorf til aldraðra og minni áhyggjur af hækkandi meðalaldri þjóðarinnar en almennt gerist hjá öðrum Evrópuþjóðum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar evrópskrar könnunar sem gerð var við upphaf Evrópuársins 2012.

Lesa meira
 

18.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs

Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins. Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska mennta- og menningarmálaráðuneytisins og norska menningarmálaráðuneytisins. Hið árlega framlag er nú um 1.300.000 norskar krónur.

Lesa meira
 
Norðurljós yfir Reykjavík

18.1.2012 Iðnaðarráðuneyti 115 umsóknir um styrk úr Þróunarsjóði Landsbanka og iðnaðarráðuneytis

Það er greinilega mikill áhugi hjá aðilum í ferðaþjónustunni fyrir Þróunarsjóðnum en markmið hans er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum.

Lesa meira
 

18.1.2012 Forsætisráðuneyti Endurskoðuð þingmálaskrá

Samkvæmt þingskapalögum skal ríkisstjórnin við upphaf þings í janúar afhenda forseta Alþingis endurskoðaða áætlun um framlagningu stjórnarfrumvarpa.

Lesa meira
 

17.1.2012 Innanríkisráðuneytið Skilafrestur í hönnunarsamkeppni um fangelsi til 16. apríl

Hönnunarsamkeppni um Fangelsi á Hólmsheiði stendur nú yfir og er skilafrestur tillagna til 16. apríl næstkomandi. Tvö fyrirspurnartímabil fyrir þátttakendur eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 30. janúar 2012 en því síðara 26. mars 2012. 

Lesa meira
 

17.1.2012 Efnahags- og viðskiptaráðuneytið Eftirgjöf skulda yfir einum milljarði króna

Eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar birtir greinargerð um endurskipulagningu fyrirtækja þar sem eftirgjöf skulda nemur hærri fjárhæð en 1 milljarði króna.

Lesa meira
 

17.1.2012 Velferðarráðuneytið Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála 2011

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur samþykkt tillögur innflytjendaráðs um veitingu styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2011. Alls bárust 49 umsóknir og voru 10 milljónir króna til úthlutunar. Veittir voru styrkir til ellefu verkefna.

Lesa meira
 

17.1.2012 Velferðarráðuneytið Upplýsingar til kvenna með P.I.P. brjóstafyllingar

Velferðarráðuneytið beinir eftirfarandi upplýsingum til kvenna með P.I.P. brjóstafyllingar í tengslum við ákvörðun stjórnvalda um að bjóða konunum ómskoðun til að kanna ástand púðanna og brottnám þeirra leiði skoðun í ljós að þeir leki.

Lesa meira
 
Brúskur í sandi.

16.1.2012 Umhverfisráðuneyti Opin málstofa um inntak og áherslur nýrra laga um landgræðslu

Nefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra landgræðslulaga boðar til málstofu til að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum varðandi vinnu nefndarinnar.

Lesa meira
 

16.1.2012 Forsætisráðuneyti Rangfærslur Samtaka atvinnulífsins leiðréttar

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar sent Samtökum atvinnulífsins svarbréf þar sem rangfærslur samtakana í bréfi frá 10. janúar sl. eru leiðréttar.

Lesa meira
 

16.1.2012 Velferðarráðuneytið Yfirlýsing norrænna geislavarnastofnana um tölvusneiðmyndarannsóknir

Norrænar geislavarnastofnanir hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um tölvusneiðmyndarannsóknir þar sem áhersla er lögð á að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Fjöldi tölvusneiðmyndarannsókna hefur aukist verulega á Norðurlöndunum síðastliðin 20 ár.

Lesa meira
 
Alþingishúsið við Austurvöll

16.1.2012 Forsætisráðuneyti Skýrsla forsætisráðherra um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, flutti Alþingi munnlega skýrslu sína um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar þegar alþingismenn komu saman til fyrsta fundar eftir jólaleyfi í dag.

Lesa meira
 

16.1.2012 Velferðarráðuneytið Velferðarráðherra heilsast vel eftir aðgerð

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra fór í aðgerð vegna bráðrar botnlangabólgu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í gær. Aðgerðin tókst vel og lætur ráðherra vel af líðan sinni en þarf að halda kyrru fyrir í nokkra daga að læknisráði.

Lesa meira
 

16.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Styrkir úr Æskulýðssjóði

Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.

Lesa meira
 

16.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Dagsetningar samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk 2012

Í lögum um grunnskóla segir að samræmd könnunarpróf í íslensku og stærðfræði skuli lögð fyrir alla nemendur í 4. og 7. bekk grunnskóla. Jafnframt er kveðið á um að nemendur 10. bekkjar skuli á fyrri hluta skólaársins þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði.
Lesa meira
 

13.1.2012 Innanríkisráðuneytið Málþing um sveitarstjórnarmál 10. febrúar á Akureyri

Málþing um sveitarstjórnarmál verður haldið á Akureyri 10. febrúar á vegum nefndar innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Skýrt verður frá könnun meðal sveitarstjórnarmanna og alþingismanna um afstöðu þeirra til lýðræðismála, sameiningarmála og samvinnu sveitarfélaga og flutt verða erindi um  eflingu sveitarstjórnarstigsins.

Lesa meira
 

13.1.2012 Innanríkisráðuneytið Drög að lagafrumvarpi um vopn, sprengiefni og skotelda til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að frumvarpi að nýjum lögum um vopn, sprengiefni og skotelda sem koma eiga í stað vopnalaga nr. 16/1998. Reynslan af gildandi lögum hefur ekki verið að öllu leyti góð en af þeim hefur hlotist nokkur óvissa og ágreiningur. 

Lesa meira
 
Innanríkisráðherra heimsóttir svæðisstjórn björgunarsveita á höfuðborgarsvæðinu.

13.1.2012 Innanríkisráðuneytið Heimsótti svæðisstjórn björgunarsveita höfuðborgarsvæðis

Ögmundur Jónasson heimsótti í dag svæðisstjórn björgunarsveita höfuðborgarsvæðisins og kynnti sér stjórnstöðvarbíl sem útbúinn hefur verið. Hefur bíllinn komið að góðum notum við leitar- og björgunaraðgerðir á höfuðborgarsvæðinu og víðar.

Lesa meira
 

13.1.2012 Velferðarráðuneytið Framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012–2014 er nú aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins. Tillagan var unnin í samræmi við bráðabirgðaákvæði laga um málefni fatlaðs fólks sem meðal annars kveður á um að sett skuli fram stefna í málefnum fatlaðs fólks, forgangsröðun verkefna, aðgerðaáætlun og skilgreindir árangursmælikvarðar.

Lesa meira
 

13.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Auglýsing frá Fornleifasjóði

Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001.

Lesa meira
 

13.1.2012 Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið Breyting á reglugerð um birtingu niðurstaðna vegna eftirlits með áburði.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð sem heimilar Matvælastofnun með ótvíræðum hætti að birta einstakar niðurstöður greininga vegna eftirlits með áburði sem er á markaði hérlendis.

Lesa meira
 
Menntaþing og þjóðfræði á Ströndum

13.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Menntaþing og þjóðfræði á Ströndum

Mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, heimsótti Hólmavík.
Lesa meira
 

13.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Styrkir úr Sprotasjóði

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Lesa meira
 

13.1.2012 Fjármálaráðuneytið Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um gerð rammalöggjafar fyrir opinber fjármál

Fjármálaráðuneytið hefur um nokkurt skeið stefnt að endurskoðun laga um fjárreiður ríkisins sem sett voru árið 1997. Fjármálaráðherra sendi beiðni til AGS vorið 2011 um að sjóðurinn  gerði tæknilega úttekt á stöðu mála hér á landi og setti fram hugmyndir um úrbætur sem gætu nýst við vinnu á endurskoðun laganna sem fyrirhugað er að ljúki á þessu ári. Tillögur AGS birtast nú hér.

Lesa meira
 
Gunnar Tryggvason

12.1.2012 Fjármálaráðuneytið Nýr aðstoðarmaður fjármálaráðherra

Gunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra. 

Lesa meira
 

12.1.2012 Fjármálaráðuneytið Greiðsluuppgjör ríkissjóðs jan - nóv 2011

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 liggur nú fyrir.

Lesa meira
 

12.1.2012 Mennta- og menningarmálaráðuneyti Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Menntamálaráðuneyti Danmerkur veitir á námsárinu 2011-2012 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnnám eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í starfsmenntaskólum eða framhaldsnáms starfsmenntakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi.
Lesa meira