Beint í leiðarkerfi vefsins.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra skrifar um baráttu gegn krabbameinum í blaðagrein í dag í tilefni alþjóðlegs baráttudags. Yfir 100 þjóðir taka þátt til að þrýsta á um að barátta gegn krabbameinum verði pólitískt viðfangsefni um allan heim.
Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og velferðarráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar nú í febrúar og mars. Lesa meira
Í ljósi nýrrar skýrslur sérfræðingahópsins SCENIHR um PIP brjóstafyllingar telur landlæknir ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öllum konum sem þær bera.
Katrín Jakobsdóttir ávarpaði fulltrúa á ráðstefnu Iðnmenntar, sem haldið var 3. febrúar sl. undir fyrirsögninni „Starfsmenntun, skóli – atvinnulíf. Gildi starfsmenntunar í íslensku samfélagi“.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að veita gæðastyrki til átta verkefna í velferðarþjónustu sem tengjast samþættingu heilbrigðis- og félagsþjónustu og stuðla að umbótastarfi, nýbreytni eða auknum gæðum þjónustunnar. Styrkirnir nema samtals 2,4 milljónum króna.
Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði síðastliðið haust til að meta gildi fjármálareglna fyrir sveitarfélög sem lögfestar eru í nýjum sveitarstjórnarlögum hefur skilað skýrslu sinni. Telur hópurinn að fjármálareglurnar geri nýjar og ákveðnar kröfur til sveitarstjórna um fjármálastjórn.
Umhverfisráðuneytið óskar eftir athugasemdum við drög að frumvarpi til laga um loftslagsmál. Með frumvarpinu er lagt til að í fyrsta skipti verði hér á landi sett heildarlöggjöf um loftslagsmál.
Íslensk heilbrigðisyfirvöld fjalla nú um niðurstöður sérfræðinganefndar um PIP brjóstafyllingar til að meta hvort þær gefi tilefni til endurskoðunar á aðgerðum stjórnvalda sem kynntar voru 10. janúar síðastliðinn. Einnig er horft til fyrstu niðurstaðna úr ómskoðunum hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2012. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sett af stað samráðsferli á netinu um hvernig draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda frá skipum. Meðal annars er horft til viðskiptakerfis Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda.
Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Tillögur til þingsályktunar um fjögurra og tólf ára fjarskiptaáætlanir voru til umræðu á Alþingi í dag þegar innanríkisráðherra mælti fyrir þeim en umræðum var frestað og síðari mál tekin af dagskrá. Þá lauk umræðu í gær um samgönguáætlanir og ganga þær nú til meðferðar umhverfis- og samgöngunefndar.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) og Vegagerðin undirrituðu í dag samning um skipulagningu almenningssamgangna milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Er verkefnið í samræmi við þá áherslu ríkisstjórnarinnar að greiða fyrir auknum hlut almenningssamgangna.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tók við völdum 1. febrúar 2009 í kjölfar stjórnarslita Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Hún hefur því verið við völd í landinu samfellt í þrjú ár.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Háskólinn á Bifröst hafa gert þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í níunda sinn þann 7. febrúar næstkomandi.
Dagur kvenfélagskonunnar er í dag, 1. febrúar. Forystukonur Kvenfélagasambandsins nýttu daginn til að færa Oddnýju G. Harðardóttur hamingjuóskir með að vera fyrsta konan til að gegna stöðu fjármálaráðherra Íslands.
Í árslok 2011 voru heildarútlán Byggðastofnunar til fyrirtækja í ferðaþjónustu um 4,6 milljarðar. Þar af voru tæpir 1,4 milljarðar til fyrirtækja í fjórum sveitarfélögum, Hornafirði, Mýrdalshreppi, Skútustaðarhreppi og Skaftárhreppi.
Öll apótek í landinu hafa nú verið tengd við réttindakerfi Sjúkratrygginga Íslands. Þar með hafa apótekin ávallt nýjustu upplýsingar um rétt fólks til greiðsluþátttöku sjúkratrygginga vegna lyfjakaupa og hvort viðkomandi njóti þeirra afsláttarkjara sem fylgja lyfjaskírteinum.
Fulltrúar þjóðkirkjunnar og Háskólans á Hólum kynntu ýmsa þætti kirkju-, menningar- og skólastarfs á Hólum í Hjaltadal fyrir innanríkisráðherra í heimsókn hans þangað um síðustu helgi. Var einnig rætt um ýmsar hugmyndir um framtíðarverkefni á Hólum.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra átti á laugardag fund með fulltrúum byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Var þar fjallað um ýmis mál er snerta byggðarlagið, meðal annars innanlandsflug, vegamál og sameiningu sýslumanns- og lögregluembætta.
Að gefnu tilefni vegna umræðu um mat á þeim eignum (útlánum) sem nýju bankarnir tóku við í október 2008, einkum í tengslum við nýútkomna skýrslu Hagfræðistofnunar Háskólans, vill fjármálaráðuneytið koma á framfæri athugasemdum er varða samningagerð og mat eigna í tengslum við stofnsetningu nýju bankanna.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur staðfest friðlýsingu hluta Skerjafjarðar innan bæjarmarka Kópavogs með fjörum og grunnsævi. Um er að ræða tvö strandsvæði, annars vegar sem liggur sunnan byggðarinnar að Kópavogi og hins vegar norðan við sveitarfélagið að Fossvogi, samtals 62,6 hektarar.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ákveðið að stofna ráðgjafahóp til að fara í saumana á faglegum þáttum í starfsemi einkarekinna læknastofa og gera tillögur til úrbóta eftir því sem þörf krefur. Ráðherra kynnti ákvörðun sína á fundi ríkisstjórnar í dag.
Maliina Abelsen, landstjórnarfulltrúi sem fer með ábyrgð fjármála á Grænlandi, er stödd hér á landi í vinnuheimsókn þar sem hún kynnti sér meðal annars starfssemi orkufyrirtækja.
Forseti þjóðþings Svartfjallalands, Ranco Krivokapic, heimsótti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á lokadegi opinberrar heimsóknar sinnar hingað til lands, 26. janúar síðastliðinn.
Rætt var um tjáningarfrelsi og lýðræði á öðrum fundi fundaraðar innanríkisráðuneytisins um mannréttindamál sem haldinn var í dag. Flutt voru þrjú erindi og síðan urðu líflegar umræður.
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur að beiðni forsætisráðherra metið það svigrúm til niðurfærslu fasteignalána sem til varð þegar þau voru færð frá gömlu bönkunum yfir í nýju bankana.
Vinna er hafin við að semja drög að frumvarpi til náttúruverndarlaga en heildarendurskoðun þeirra stendur nú yfir.
Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1009 dýr á árinu sem er fjölgun um átta dýr frá fyrra ári.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur ráðið Gunnar Axel Axelsson í starf aðstoðarmanns, í samræmi við 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Gunnar Axel er viðskiptafræðingur að mennt og situr í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Nefndir sem annast mat á þörf fólks fyrir vistun í dvalarrými eða hjúkrunarrými verða sameinaðar, samþykki Alþingi frumvarp þess efnis sem Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra mælti fyrir á Alþingi í dag. Markmið breytinganna er að auðvelda fólki að sækja um stofnanavistun og einfalda stjórnsýsluna.
Með vísan til reglugerðar nr. 25/2012, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 18. janúar 2012, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir kartöflunasl í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnið er í Noregi og er innflutt þaðan.
Ávarp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra á málþingi Þroskaþjálfafélags Íslands um barnalýðræði á Íslandi.
Enn vekur alþjóðleg skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs Íslands frá því í júní sl.mikla athygli. Fagtímaritið Euroweek hefur valið útgáfu Íslands meðal þeirra bestu í vali sínu á bestu skuldabréfaútgáfum ársins 2011.
Innanríkisráðherra hefur ásamt fulltrúum Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar farið yfir stöðuna varðandi siglingar í Landeyjahöfn. Hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið, líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn og rannsóknir sem framundan eru. Við fjármögnun verður litið til verkefnisins í heild, þ.e. smíði nýrrar ferju og aðgerða til aðlögunar Landeyjahafnar að breyttum náttúrulegum aðstæðum.
Innanríkisráðherra hefur skipað sérfræðingahóp til að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og leggja fram tillögur að hagfelldu heildarskipulagi slíkra rannsókna.
Verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð heldur ráðstefnu 10. febrúar þar sem kynnt verður hugmyndafræði, framkvæmd og skipulag slíkrar þjónustu. Ráðstefnan verður einnig send út á Netinu.
Starfshópur innanríkisráðherra um hvernig koma megi strandsiglingum á að nýju hefur skilað ráðherra tillögum sínum. Leggur hópurinn til að leitað verði tilboða í siglingarnar samkvæmt ákveðnum forsendum þar sem boðið verði í meðgjöf ríkisins til nokkurra ára meðan siglingarnar koma undir sig fótunum. Miðað er við tilraunaverkefni til nokkurra ára og að því loknu standi siglingarnar undir sér.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritaði í dag nýja byggingarreglugerð. Reglugerðin er sérlega yfirgripsmikil enda tekur hún til fjölda atriða sem snerta daglegt líf og aðbúnað almennings.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur gefið út leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk. Reglurnar taka til þjónustu stuðningsfjölskyldna, ferðaþjónustu, styrkja til náms og til verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks.
Ávarp Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra við opnun sýningarinnar „Í afbyggingu“ 13. janúar 2012 í Listasafni Íslands.
Félag forstöðumanna ríkisstofnana og fjármálaráðuneytið í samvinnu við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála boða til morgunverðarfundar 25. janúar nk. um bætta umgjörð fjárlagagerðar. Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, mun flytja erindi ásamt fleirum.
Velferðarráðuneytið og Krabbameinsfélag Íslands (KÍ) hafa undirritað samning um að Leitarstöð KÍ annist ómskoðanir kvenna sem fengið hafa ígrædda PIP brjóstapúða á árunum 2000-2010. Bréf velferðarráðuneytisins með boði til kvennanna um ómskoðun verða send út á morgun, 24. janúar.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur sett af stað samráðsferli á netinu þar sem óskað er eftir áliti og upplýsingum frá almenningi um hvernig best megi stuðla að sjálfbærri neyslu, framleiðslu og iðnaði.
KreaNord heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og
sköpunariðnaði.
KreaNord heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og
sköpunariðnaði.
KreaNord heldur áfram að efla stöðu Norðurlanda sem forystusvæðis í menningar- og
sköpunariðnaði. Fræðist um skapandi greinar á Norðurlöndum, skráið ykkur og
tengist stærsta tengslaneti á sviði skapandi greina á Norðurlöndum.
Innanríkisráðuneytið efnir til annars fundar í fundarröð um mannréttindamál föstudaginn 27. janúar næstkomandi klukkan 8.30 til 10 í Iðnó í Reykjavík. Efni fundarins verður tjáningarfrelsi og lýðræði.
Málþing um sveitarstjórnarmál verður haldið á Akureyri föstudaginn 10. febrúar næstkomandi á vegum nefndar innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins en í henni eiga einnig sæti fulltrúar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þátttakendur geta skráð sig á málþingið með því að senda tölvupóst á netfangið arny.g.olafsdottir@irr.is.
Hinn dæmigerði erlendi sumarferðamaður eru tæplega fertug bandarísk hjón sem koma barnlaus í 10 daga frí, skoða Gullfoss og Geysi og kaupa vöru og þjónustu fyrir 370.000 kr. Og þau ætla að koma aftur!
Það er okkar von að ráðstefnan verði til þess að efla enn frekar umræðu um kynferðisbrot á Íslandi. Hugsanlega finnum við leiðir til að breyta og bæta meðferð þeirra í réttarkerfinu, sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra meðal annars þegar hann setti ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu í dag. Þar var meðal annars fjallað um ýmsar hliðar á vernd barna fyrir kynferðislegri misneytingu, málsmeðferð, lagabreytingar og hlutverk ákæruvaldsins.
Upplýsingar um skilmála styrkja frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf deildarstjóra í framhaldsskóladeild á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í málefnum leik- og grunnskóla á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.
Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, birti grein í Fréttablaðinu þann 18. janúar. Greinin fjallar um samanburð á tekjuskattbyrði einstaklinga síðastliðin ár og hversu mikilvægt það er að þeir útreikningar og forsendur sem notast er við í skattaumræðunni séu réttir. Greinina má lesa hér.
Vefur Tryggingastofnunar ríkisins tr.is var útnefndur besti ríkisvefurinn í úttekt þar sem lagt var mat á 267 opinbera vefi hjá ríki og sveitarfélögum. Í niðurstöðu dómnefndar segir að vefurinn geymi gríðarlegt magn upplýsinga sem eru settar fram á skýran og aðgengilegan hátt.
Ávarp mennta- og menningarmálaráðherra á fundi 13. janúar 2012, um símenntun og starfsþróun kennara með stjórn KÍ,
stjórnum og skólamálanefndum aðildarfélaga og fulltrúum KÍ í stjórnum endurmenntunarsjóða.
Ytra mat á leik- og grunnskólum er lögbundið verkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis og sveitarfélaga. Vorið 2011 lagði faghópur um ytra mat fram tillögu um útfærslu á ytra mati á grunnskólum, sameiginlegu verkefni ráðuneytis og sveitarfélaga.
Skýrsla starfshóps iðnaðarráðherra um lagaramma orkumála var kynnt í ríkisstjórn 17. janúar. Í skýrslunni er greining á þeim álitaefnum sem tengjast fyrirkomulagi á orkumarkaði og eignarhaldi orkuvinnslu.
Niðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á fundi í dag undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Hlaut vefur Tryggingastofnunar viðurkenninguna besti ríkisvefurinn 2011 og vefur Akureyrarbæjar viðurkenninguna besti sveitarfélagavefurinn 2011.
Íslendingar hafa jákvæðara viðhorf til aldraðra og minni áhyggjur af hækkandi meðalaldri þjóðarinnar en almennt gerist hjá öðrum Evrópuþjóðum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar evrópskrar könnunar sem gerð var við upphaf Evrópuársins 2012.
Árið 1994 ákváðu norsk stjórnvöld að leggja til árlegt framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs sem Haraldur V Noregskonungur kynnti í heimsókn sinni til Íslands vegna 50-ára afmælis íslenska lýðveldisins. Framlaginu skyldi ráðstafað í samráði íslenska mennta- og menningarmálaráðuneytisins og norska menningarmálaráðuneytisins. Hið árlega framlag er nú um 1.300.000 norskar krónur.
Það er greinilega mikill áhugi hjá aðilum í ferðaþjónustunni fyrir Þróunarsjóðnum en markmið hans er að lengja ferðamannatímabilið á Íslandi, með því að styrkja þróun afurða og upplifana utan háannatíma ferðaþjónustu og auka þannig arðsemi fyrirtækja í geiranum.
Samkvæmt þingskapalögum skal ríkisstjórnin við upphaf þings í janúar afhenda forseta Alþingis endurskoðaða áætlun um framlagningu stjórnarfrumvarpa.
Hönnunarsamkeppni um Fangelsi á Hólmsheiði stendur nú yfir og er skilafrestur tillagna til 16. apríl næstkomandi. Tvö fyrirspurnartímabil fyrir þátttakendur eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 30. janúar 2012 en því síðara 26. mars 2012.
Eftirlitsnefnd um framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar birtir greinargerð um endurskipulagningu fyrirtækja þar sem eftirgjöf skulda nemur hærri fjárhæð en 1 milljarði króna.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur samþykkt tillögur innflytjendaráðs um veitingu styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála fyrir árið 2011. Alls bárust 49 umsóknir og voru 10 milljónir króna til úthlutunar. Veittir voru styrkir til ellefu verkefna.
Velferðarráðuneytið beinir eftirfarandi upplýsingum til kvenna með P.I.P. brjóstafyllingar í tengslum við ákvörðun stjórnvalda um að bjóða konunum ómskoðun til að kanna ástand púðanna og brottnám þeirra leiði skoðun í ljós að þeir leki.
Nefnd, sem umhverfisráðherra skipaði á vordögum til að semja greinargerð um inntak og áherslur nýrra landgræðslulaga boðar til málstofu til að kalla eftir sjónarmiðum og ábendingum varðandi vinnu nefndarinnar.
Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar sent Samtökum atvinnulífsins svarbréf þar sem rangfærslur samtakana í bréfi frá 10. janúar sl. eru leiðréttar.
Norrænar geislavarnastofnanir hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um tölvusneiðmyndarannsóknir þar sem áhersla er lögð á að ekki séu framkvæmdar aðrar rannsóknir en þær sem líklegar eru til að hafa jákvæð áhrif á heilsu sjúklinga. Fjöldi tölvusneiðmyndarannsókna hefur aukist verulega á Norðurlöndunum síðastliðin 20 ár.
Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, flutti Alþingi munnlega skýrslu sína um störf og stefnu ríkisstjórnarinnar þegar alþingismenn komu saman til fyrsta fundar eftir jólaleyfi í dag.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra fór í aðgerð vegna bráðrar botnlangabólgu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í gær. Aðgerðin tókst vel og lætur ráðherra vel af líðan sinni en þarf að halda kyrru fyrir í nokkra daga að læknisráði.
Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr. 60/2008.
Málþing um sveitarstjórnarmál verður haldið á Akureyri 10. febrúar á vegum nefndar innanríkisráðherra um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Skýrt verður frá könnun meðal sveitarstjórnarmanna og alþingismanna um afstöðu þeirra til lýðræðismála, sameiningarmála og samvinnu sveitarfélaga og flutt verða erindi um eflingu sveitarstjórnarstigsins.
Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að frumvarpi að nýjum lögum um vopn, sprengiefni og skotelda sem koma eiga í stað vopnalaga nr. 16/1998. Reynslan af gildandi lögum hefur ekki verið að öllu leyti góð en af þeim hefur hlotist nokkur óvissa og ágreiningur.
Ögmundur Jónasson heimsótti í dag svæðisstjórn björgunarsveita höfuðborgarsvæðisins og kynnti sér stjórnstöðvarbíl sem útbúinn hefur verið. Hefur bíllinn komið að góðum notum við leitar- og björgunaraðgerðir á höfuðborgarsvæðinu og víðar.
Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks 2012–2014 er nú aðgengileg á vef velferðarráðuneytisins. Tillagan var unnin í samræmi við bráðabirgðaákvæði laga um málefni fatlaðs fólks sem meðal annars kveður á um að sett skuli fram stefna í málefnum fatlaðs fólks, forgangsröðun verkefna, aðgerðaáætlun og skilgreindir árangursmælikvarðar.
Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð sem heimilar Matvælastofnun með ótvíræðum hætti að birta einstakar niðurstöður greininga vegna eftirlits með áburði sem er á markaði hérlendis.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Fjármálaráðuneytið hefur um nokkurt skeið stefnt að endurskoðun laga um fjárreiður ríkisins sem sett voru árið 1997. Fjármálaráðherra sendi beiðni til AGS vorið 2011 um að sjóðurinn gerði tæknilega úttekt á stöðu mála hér á landi og setti fram hugmyndir um úrbætur sem gætu nýst við vinnu á endurskoðun laganna sem fyrirhugað er að ljúki á þessu ári. Tillögur AGS birtast nú hér.
Gunnar Tryggvason verkfræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Oddnýjar Harðardóttur fjármálaráðherra.
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu ellefu mánuði ársins 2011 liggur nú fyrir.