Fréttamannafundir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri-grænna

Fréttamannafundur ríkisstjórnarinnar 3. mars 2009

3.3.2009

Meðal þess efnis sem fjallað var um á fundinum voru samningagerð á milli gömlu og nýju bankanna, skipan nefndar um mótun reglna um skipan dómara, staða þjóðarbúsins og frumvörp og þingsályktunartillögur ríkisstjórnarinnar, sem afgreidd hafa verið úr ríkisstjórn til alþingis.

Á fundinum var dreift yfirliti yfir stöðu þeirra 30 þingmála sem afgreidd hafa verið úr ríkisstjórn til þings og stöðu þeirra í þinginu. Um 10 mál eru vegna breytinga ýmissa lýðræðis- stjórnkerfis- og jafnréttismála en níu þeirra lúta að því að styrkja stöðu heimilis og atvinnulífs.

Þá var ennfremur dreift yfirlit yfir stöðu samningaumleitana við erlend ráðgjafafyrirtæki um aðkoma þeirra að samningagerð vegna gömlu og nýju bankana Fjallað var um skipan þriggja manna nefndar til að móta nýjar reglur um skipan dómara við hæstarétt og í héraði.

Þá var gerð grein fyrir skipan peningamálstefnunefndar.

Gerð var grein fyrir væntanlegu frumvarpi sem beinist að því að bjarga þeim heimilum sem verst eru sett.

Fréttatilkynningar vegna ákvarðana á ríkisstjórnarfundi:

 

 
 

Fyrirspurnir