Framtíðarsýn og aðgerðir

Að gefnu tilefni: vegna yfirlýsinga SA

Vegna bréfs Samtaka atvinnulífsins um framgang yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga sem sent var fjölmiðlum 11. janúar 2012 er vísað í vinnuyfirlit stjórnvalda um stöðu og framgang verkefna.

 
Framtíðarsýn og aðgerðir

Staða 222 verkefna í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar – 164 verkefni afgreidd eða afgreidd að mestu

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar birtast áherslur og markmið henna. Þar eru tilgreind 222 verkefni og aðgerðir sem ríkisstjórnin einsetti sér að vinna að á kjörtímabilinu.

 
Mælikvarðar fyrir markmið Ísland 2020

Mælikvarðar og markmið - Ísland 2020

Í árslok 2010 samþykkti ríkisstjórnin stefnumarkandi skjal, Ísland 2020. Í því eru sett fram 20 markmið sem snerta þekkingu, velferð og sjálfbærni. Nú hefur markmiðunum verið stillt upp á myndrænan hátt og þau tengd mælikvörðum til að sýna þróun þeirra.

 
Stjórnarráðshúsið og verk eftir Steinunni Þórarinsdóttur

Ný lög um Stjórnarráð Íslands

Alþingi hefur samþykkt frumvarp sem felur í sér heildarendurskoðun laga um Stjórnarráðið. Með lögunum er lagður nýr grunnur að umbótum og endurreisn stjórnsýslunar sem að undanförnu hefur verið unnið að.

 
Þingvellir

Hvítbók um náttúruvernd á Íslandi komin út

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur kynnt í ríkisstjórn hvítbók sem nefnd um endurskoðun náttúruverndarlaga hefur unnið en í henni felst heildarúttekt á lagaumhverfi náttúruverndar á Íslandi.

 
Landslag

Rammaáætlun - opið samráðs- og kynningarferli

Til 11. nóvember fer fram opið umsagnarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og umhverfis- ráðherra um verndun og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði. Sjá nánar á rammaaaetlun.is en þar má finna tillögu til þingsályktunar ásamt fylgigögnum auk forms fyrir umsagnir.

 
Ísland 2020 – sókn fyrir atvinnulíf og samfélag

Ísland 2020 – sókn fyrir atvinnulíf og samfélag

Ísland 2020 er stefnumarkandi skjal um öflugra atvinnulíf og samfélag. Það varð til í samtölum og samvinnu hundruða Íslendinga um land allt og samráði við landshlutasamtök, sveitarfélög, verkalýðshreyfingu og samtök í atvinnulífi. Sjá: forsaetisraduneyti.is/2020

 
Stjórnlagaráð

Stjórnlagaráð

Stjórnlagaráð sem skipað er á grundvelli þingsályktunar Alþingis kemur saman fyrsta sinni miðvikudaginn 6. apríl 2011. Í ráðinu eiga sæti 25 einstaklingar. Hlutverk ráðsins er að gera tillögur til Alþingis um endur-skoðun stjórnarskrárinnar. Fundir ráðsin eru opnir almenningi og sendir út á vefnum stjornlagarad.is.

 
Örkynning

Örkynningar

Hér má sjá örkynningar frá fjármálaráðuneytinu um meginhugtök, stærðir og spár í efnahagsmálum. Markmiðið er að bjóða aðgengilegt efni um efnahagslíf þjóðarinnar og þróun efnahagsmála.

 

Ríkisstjórn


Úr samstarfsyfirlýsingu

„Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er mynduð um að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika og leita þjóðarsamstöðu um leið Íslands til endurreisnar ..."

„Gangi áætlanir ríkisstjórnarinnar í efnahags- og ríkisfjármálum eftir eru góðar líkur á að hagvöxtur verði orðinn viðunandi, verðbólga lág, gengi stöðugt og atvinnuleysi hafi dregist verulega saman við lok kjörtímabilsins. Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi og betra samfélagi, samfélagi sem mun skipa sér í fremstu röð í verðmætasköpun, velmegun, velferð og sönnum lífgæðum.

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ætlar sér að verða norræn velferðarstjórn í besta skilningi þess orðs."   Nánar ...



Tungumál


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica