Fréttamannafundir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri-grænna
Fréttamannafundur 10. febrúar 2009
Fréttamannafundur ríkisstjórnar Íslands, haldinn í Þjóðmenningarhúsinu 10. febrúar 2009.
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra kynntu nokkur málefni frá ríkisstjórnarfundi:
- Endurreisn fjármálakerfisins með aðkomu erlendra sérfræðinga - kynntur fyrirhugaður fréttamannafundur miðvikudaginn 11. febrúar 2009 með Mats Josefsson, formanni endurreisnarnefndar.
- Starfsáætlun endurreisnarnefndar samþykkt af ríkisstjórn.
- Eignaumsýslufélög verði stofnuð til að tryggja atvinnuuppbyggingu og forða því að verðmæti fari til spillis, vegna 15-20 fyrirtækja sem hafa sérstaka þjóðhagsstöðu.
- Alþjóðlegir ráðgjafar verði ráðnir til að aðstoða skilanefndir í samskiptum við erlenda kröfuhafa, sem hafa sterka aðila á sínum snærum.
- Mörkuð þáttaskil í endurreisn fjármálakerfisins með þeim aðgerðum, sem nú eru komnar í ferli.
- Frumvarp um séreignasparnað, væntanlega lagt fram í þessari viku.
- Velferðarvakt rædd á ríkisstjórnarfundinum.
- Gjaldþrotamál heimilanna tekin fyrir á föstudag í ríkisstjórninni, einnig greiðslujöfnun vegna myntkörfulána.
Sjá einnig:
- Verkefnaskrá ríkisstjórnar
- Þáttaskil í vinnu stjórnvalda við að byggja upp fjármálakerfið
- Velferðarvakt sett á fót
- Áhrif efnahagsþrenginga á stöðu kynjanna
Myndband af fréttamannafundinum:
Meðal þeirra atriða sem voru rædd á fundinum:
- Um séreignarsparnað
- Um Seðlabankann
- Um neyðarlög og eignarrétt
- Um samstarfið við IMF
- Um eignaumsýslufélög
