Framtíðarsýn og aðgerðir

Að gefnu tilefni: vegna yfirlýsinga SA

Vegna bréfs Samtaka atvinnulífsins um framgang yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga sem sent var fjölmiðlum 11. janúar 2012 er vísað í vinnuyfirlit stjórnvalda um stöðu og framgang verkefna.

 
Framtíðarsýn og aðgerðir

Staða 222 verkefna í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar – 164 verkefni afgreidd eða afgreidd að mestu

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar birtast áherslur og markmið henna. Þar eru tilgreind 222 verkefni og aðgerðir sem ríkisstjórnin einsetti sér að vinna að á kjörtímabilinu.

 
Mælikvarðar fyrir markmið Ísland 2020

Mælikvarðar og markmið - Ísland 2020

Í árslok 2010 samþykkti ríkisstjórnin stefnumarkandi skjal, Ísland 2020. Í því eru sett fram 20 markmið sem snerta þekkingu, velferð og sjálfbærni. Nú hefur markmiðunum verið stillt upp á myndrænan hátt og þau tengd mælikvörðum til að sýna þróun þeirra.

 

Greinar og fréttir

Laun forsætisráðherra skert um 5,2 milljónir króna frá hruni - 17.2.2012

Fyrir viku sló Fréttatíminn upp launahækkunum forsætisráðherra og þingmanna. Tilefnið virtist vera ákvörðun kjararáðs snemma vetrar um að fella úr gildi þá launalækkun sem gilt hafði frá því þremur mánuðum eftir bankahrunið haustið 2008.


Vert er að halda nokkrum staðreyndum til haga í þessu sambandi.  Með lagabreytingum í árslok 2008, sem m.a. Jóhanna Sigurðardóttir stóð að lækkaði kjararáð laun ráðherra og þingmanna um allt að 15 prósent.  Þetta þótti eðlilegt og sjálfsagt eins og á stóð eftir bankahrunið, enda tóku allir landsmenn á sig kjaraskerðingu.


Lesa meira
 

Úr samstarfsyfirlýsingu

„Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er mynduð um að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika og leita þjóðarsamstöðu um leið Íslands til endurreisnar ..."

„Gangi áætlanir ríkisstjórnarinnar í efnahags- og ríkisfjármálum eftir eru góðar líkur á að hagvöxtur verði orðinn viðunandi, verðbólga lág, gengi stöðugt og atvinnuleysi hafi dregist verulega saman við lok kjörtímabilsins. Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi og betra samfélagi, samfélagi sem mun skipa sér í fremstu röð í verðmætasköpun, velmegun, velferð og sönnum lífgæðum.

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ætlar sér að verða norræn velferðarstjórn í besta skilningi þess orðs."   Lesa meira



Tungumál


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica