Framtíðarsýn og aðgerðir

Að gefnu tilefni: vegna yfirlýsinga SA

Vegna bréfs Samtaka atvinnulífsins um framgang yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga sem sent var fjölmiðlum 11. janúar 2012 er vísað í vinnuyfirlit stjórnvalda um stöðu og framgang verkefna.

 
Framtíðarsýn og aðgerðir

Staða 222 verkefna í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar – 164 verkefni afgreidd eða afgreidd að mestu

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar birtast áherslur og markmið henna. Þar eru tilgreind 222 verkefni og aðgerðir sem ríkisstjórnin einsetti sér að vinna að á kjörtímabilinu.

 
Mælikvarðar fyrir markmið Ísland 2020

Mælikvarðar og markmið - Ísland 2020

Í árslok 2010 samþykkti ríkisstjórnin stefnumarkandi skjal, Ísland 2020. Í því eru sett fram 20 markmið sem snerta þekkingu, velferð og sjálfbærni. Nú hefur markmiðunum verið stillt upp á myndrænan hátt og þau tengd mælikvörðum til að sýna þróun þeirra.

 

Ríkisstjórn


Úr samstarfsyfirlýsingu

„Ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er mynduð um að tryggja efnahagslegan og félagslegan stöðugleika og leita þjóðarsamstöðu um leið Íslands til endurreisnar ..."

„Gangi áætlanir ríkisstjórnarinnar í efnahags- og ríkisfjármálum eftir eru góðar líkur á að hagvöxtur verði orðinn viðunandi, verðbólga lág, gengi stöðugt og atvinnuleysi hafi dregist verulega saman við lok kjörtímabilsins. Samhliða endurreisninni er mikilvægt að unnið sé markvisst að því í samvinnu allrar þjóðarinnar að leggja grunn að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi og betra samfélagi, samfélagi sem mun skipa sér í fremstu röð í verðmætasköpun, velmegun, velferð og sönnum lífgæðum.

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs ætlar sér að verða norræn velferðarstjórn í besta skilningi þess orðs."   Nánar ...



Tungumál


Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica